Hella Sumarfundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn á Hellu þetta árið.
Hella Sumarfundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn á Hellu þetta árið. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sumarfundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn á Hellu á þriðjudaginn í samræmi við venju síðastliðinna tveggja ára.

Sumarfundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn á Hellu á þriðjudaginn í samræmi við venju síðastliðinna tveggja ára.

Ekki er ljóst hver aðalumræðuefni fundarins verða en teljast verður líklegt að kórónuveirufaraldurinn og nýjar sóttvarnareglur, sem taka gildi á miðvikudag, séu á meðal þeirra málefna sem verða til umræðu. Dagskrá fundarins verður kynnt á mánudaginn næstkomandi.

Seinasti sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn í Mývatnssveit í fyrra, þar sem helst var rætt um jarðakaup útlendinga en sumarið 2018 fundaði ríkisstjórnin á Snæfellsnesi, þar sem meðal annars var rætt um áherslur ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmálanum.