60 ára Magnús er Reykvíkingur. Hann lauk BA-prófi í fjölmiðlun frá NIU í Illinois og meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá HÍ. Magnús er skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla.
60 ára Magnús er Reykvíkingur. Hann lauk BA-prófi í fjölmiðlun frá NIU í Illinois og meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá HÍ. Magnús er skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla. Hann er varaformaður Golfklúbbs Þorlákshafnar og formaður Manchester City-klúbbsins. Hann situr einnig í stjórn Fræðslusjóðs og Iðnmenntar.

Maki : Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1969, íslenskukennari í MR.

Dætur : Birna Ýr, f. 1991, og Brynja Kristín, f. 1995. Stjúpdætur eru Dagný Ísafold, f. 1993, og Ásthildur Eyja, f. 2001. Barnabarn er Emil Óli, f. 2018, sonur Dagnýjar.

Foreldrar : Ingvi Guðjónsson, f. 1937, d. 2006, deildarstjóri hjá SÍS, og Þóra Magnúsdóttir, f. 1937, d. 2016, verslunarkona.