Safamýri Fram og ÍBV gerðu ótrúlegt jafntefli í Safamýri í gær.
Safamýri Fram og ÍBV gerðu ótrúlegt jafntefli í Safamýri í gær. — AFP
Fram og ÍBV gerðu ótrúlegt 4:4-jafntefli í Lengjudeild karla í fótbolta á Framvellinum í Safamýri í gærkvöld. ÍBV komst í 4:2, en Framarar neituðu að gefast upp.
Fram og ÍBV gerðu ótrúlegt 4:4-jafntefli í Lengjudeild karla í fótbolta á Framvellinum í Safamýri í gærkvöld. ÍBV komst í 4:2, en Framarar neituðu að gefast upp. Bjarni Ólafur Eiríksson, Tómas Bent Magnússon, Felix Örn Friðriksson og Gary Martin skoruðu mörk Eyjamanna á meðan Fred, Þórir Guðjónsson og varamennirnir Tryggvi Snær Geirsson og Aron Snær Ingason gerðu mörk Fram. Jafnaði Aron metin í uppbótartíma. ÍBV er í öðru sæti með 19 stig og Fram í þriðja með 18.