Jacoby Shaddix hlakkar til að hitta pabba gamla.
Jacoby Shaddix hlakkar til að hitta pabba gamla. — AFP
Heilun Málmbandið Papa Roach er í hljóðveri um þessar mundir að semja og taka upp nýja plötu. Í samtali við bandarísku útvarpsstöðina WEBN segir Jacoby Shaddix söngvari rífandi gang í verkefninu og að efnið sé funheitt.
Heilun Málmbandið Papa Roach er í hljóðveri um þessar mundir að semja og taka upp nýja plötu. Í samtali við bandarísku útvarpsstöðina WEBN segir Jacoby Shaddix söngvari rífandi gang í verkefninu og að efnið sé funheitt. Þar á meðal er lag, No Apologies, sem Shaddix tileinkar föður sínum. „Tilgangurinn er að fyrirgefa allt sem gengið hefur á í lífi okkar feðga en af einhverjum ástæðum höfum við ekki tengt. Í þessu fólst mikil heilun fyrir mig. Ég get ekki beðið eftir að hafa uppi á gamla manninum og spila þetta lag fyrir hann og gera um leið upp okkar sakir. Tónlistin gefur okkur það tækifæri.“