Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er bjartsýn á að ferðaþjónustan muni aftur taka við sér þegar faraldrinum lýkur.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er bjartsýn á að ferðaþjónustan muni aftur taka við sér þegar faraldrinum lýkur. Hún segir það sérstakt gleðiefni að búist sé við afgangi af viðskiptajöfnuði á árinu, sem nemi um 2% af landsframleiðslu, þrátt fyrir þau áföll sem dunið hafa á að undanförnu.

Í aðsendri grein Lilju, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, kemur fram að sökum þess að samdráttur á þjónustujöfnuði er bæði í inn- og útflutningi myndast minni halli en ætla mætti af tekjufalli ferðaþjónustunnar.

„Ferðaþjónustan mun taka við sér og skapa aftur mikil verðmæti, en framtíðarverkefni stjórnvalda er að fjölga stoðunum undir útflutningstekjum þjóðarinnar og tryggja að hagkerfið þoli betur áföll og tekjusamdrátt í einni grein,“ segir Lilja. 25