Net Ný útgáfa Vivaldi.
Net Ný útgáfa Vivaldi.
Ný útgáfa norsk-íslenska netvafrans Vivaldi 3.3. er komin út. Ýmsar breytingar er þar að finna, sem miða að því að bæta upplifun notenda af vafranum en einnig auka öryggi.

Ný útgáfa norsk-íslenska netvafrans Vivaldi 3.3. er komin út. Ýmsar breytingar er þar að finna, sem miða að því að bæta upplifun notenda af vafranum en einnig auka öryggi.

Í tilkynningu frá Vivaldi segir að í nýju útgáfunni sé notendum til dæmis gert auðveldara fyrir að þekkja óþekktar eða ólöglegar vefsíður. Þegar vefsíða sé opnuð sé aðalhluti veffangsins feitletraður, þannig að minni áhersla verði á restina af því, en það varpi skýrara ljósi á hvaða fyrirtæki stýri léninu.