Hluti eins málverka Elínborgar.
Hluti eins málverka Elínborgar.
Elínborg Jóhannesdóttir Ostermann opnar í dag, laugardag, kl. 14 sýningu í Gallerí Fold við Rauðarárstíg sem hún kallar Flæði.

Elínborg Jóhannesdóttir Ostermann opnar í dag, laugardag, kl. 14 sýningu í Gallerí Fold við Rauðarárstíg sem hún kallar Flæði.

Elínborg sýnir abstrakt málverk, unnin með akríllitum, þar sem litir og form leika saman í áköfu flæði, eins og segir í tilkynningu. Verkin eru „unnin í gleði augnabliksins, þar sem hugmyndaflugið stýrir ferðinni og formin spretta fram“.