Skólavörðustígur 36 Ekkert er eftir af þessu friðaða húsi nema rústir.
Skólavörðustígur 36 Ekkert er eftir af þessu friðaða húsi nema rústir. — Ljósmynd/Google
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Húsið Skólavörðustígur 36, sem rifið var í óleyfi á miðvikudaginn, var friðað vegna hverfisverndar. Það var talið hafa menningarsögulegt gildi sem hluti af heillegri byggð húsa frá 3. áratugi 20.

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Húsið Skólavörðustígur 36, sem rifið var í óleyfi á miðvikudaginn, var friðað vegna hverfisverndar. Það var talið hafa menningarsögulegt gildi sem hluti af heillegri byggð húsa frá 3. áratugi 20. aldar á Skólavörðuholti. Þetta kemur fram í húsakönnun fyrir svæðið, sem unnin var af Minjasafni Reykjavíkur 2009.

Í skipulagsreglugerð sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið setti árið 2013 segir um hverfisvernd: „Ákvæði í svæðis-, aðal- eða deiliskipulagi um vernd á sérkennum eldri byggðar, annarra menningarsögulegra minja eða náttúruminja.“

Í húsakönnun Minjasafnsins segir að húsið Skólavörðustígur 36 hafi verið byggt árið 1922 eftir teikningu Guðmundar H. Þorlákssonar byggingameistara. Öll hús og mannvirki sem eru 100 ára eða eldri eru friðuð samkvæmt lögum um menningarminjar og því voru aðeins tvö ár í að Skólavörðustígur 36 nyti slíkrar varanlegrar friðunar.

Bæta átti við hæð

Í fyrstu fékkst leyfi fyrir einlyftu húsi, en á meðan það var enn í byggingu var samþykkt að byggja mætti ofan á það aðra hæð. Húsið Skólavörðustígur 36 hefur því frá upphafi verið tvílyft með risi.

Í fyrstu brunavirðingu er húsið sagt byggt úr hlöðnum steinlímdum kalksteini, sem er afar óvenjulegt byggingarefni á þessum tíma, segir í húsakönnuninni. Í seinni virðingu er húsið hins vegar sagt byggt úr hlöðnum holsteini, 12 x 9 tommu þykkum, og er líklegra talið að þar sé um rétt byggingarefni að ræða. Inn- og uppgönguskúr hefur frá upphafi verið við vesturgafl hússins. Á hvorri hæð hússins var upphaflega ein íbúð. Um leið og húsið var byggt var reistur lítill geymsluskúr úr steinsteypu í suðvesturhorni lóðarinnar. Árið 1928 var búið að byggja nýjan og stærri geymslu- og þvottaskúr úr steinsteypu í suðausturhorni lóðarinnar. Árið 1942 var þessi skúr lengdur til norðvesturs og um leið byggður bílskúr úr timbri framan við hann, meðfram austurlóðamörkum. Húsið virðist hafa staðið óbreytt fram til ársins 1968, að öðru leyti en því að smárúðurammar í efri hluta glugganna voru fjarlægðir.

Staðið autt frá 2017

Árið 1968 var innréttað verslunarhúsnæði á neðri hæð hússins, sem hafði þá um tíma verið notuð undir skrifstofur. Um leið var gluggum á framhlið hæðarinnar breytt í stóra verslunarglugga og inngangur settur á þá hlið. Síðan var opnuð þarna Búsáhaldaverslun Þorsteins Bergmann. Þá var bílskúrinn austan við húsið rifinn.

Búsáhaldaverslunin var rekin fram til ársins 2017. Síðan þá hefur húsið staðið autt.

Niðurrif kært

Nikulás Úlfar Másson, byggingarfulltrúi Reykjavíkur sagði við mbl.is í gær, að niðurrif hússins yrði kært til lögreglu, framkvæmdir á lóðinni hefðu verið stöðvaðar og ekkert yrði gert þar í bili.

„Það var ekkert leyfi til niðurrifs og það var aldrei sótt um það. Þú mátt ekki rífa hús eða fikta í þeim með neinum hætti. Hann hins vegar bara reif húsið á innan við klukkutíma,“ sagði Nikulás.

Langur aðdragandi

Birgir Örn Arnarson, eigandi hússins við Skólavörðustíg, sagði í samtali við mbl.is að langur aðdragandi hafi verið að framkvæmdum þar. Áformin hafi þurft að fara tvisvar í grenndarkynningu og margsinnis hafi verið brotist inn í húsið. „Það er nú fyrir þreyttan að þola að mál skuli hafa þróast með þessum hætti. Nú þarf ég að fá botn í hvað þarf að gera til að ljúka þessum endurbótum,“ segir Birgir.

Hann rekur að húsið hafi verið orðið myglað af rakaskemmdun og engin prýði hafi verið af því. Teikningar af endurbyggðu húsi sýni að það verði mjög glæsilegt.

„Það verður í stíl við götumyndina og verður líkt því útliti sem var upphaflega á húsinu,“ segir Birgir sem kveðst vera að reyna að finna út hvað nákvæmlega fór úrskeiðis og olli því að húsið var rifið. „Það gera allir mistök,“ segir hann.