Chantelle greyið Atkins er bráðfeig.
Chantelle greyið Atkins er bráðfeig. — BBC/Kieron McCarron
Morð Sápurnar okkar eru óðum að rumska aftur eftir heimsfaraldurinn og Bretar fengu þau gleðitíðindi á dögunum að ný sería af EastEnders væri handan við hornið.
Morð Sápurnar okkar eru óðum að rumska aftur eftir heimsfaraldurinn og Bretar fengu þau gleðitíðindi á dögunum að ný sería af EastEnders væri handan við hornið. Handritshöfundar sitja nú sveittir við að skrifa kórónuveiruna inn í söguþráðinn og lekið hefur út að þessi lífseiga sápa ætli að skoða vöxt heimilisofbeldis í faraldrinum sérstaklega. Fram hefur meira að segja komið að hárgreiðslukonan unga Chantelle Atkins verði myrt af bónda sínum, Gray.