Í fréttum var greint frá misvelheppnuðum tilburðum til efnahagslegrar endurreisnar en niðurrif þessa húss á Skólavörðustíg heppnaðist fullkomlega.
Í fréttum var greint frá misvelheppnuðum tilburðum til efnahagslegrar endurreisnar en niðurrif þessa húss á Skólavörðustíg heppnaðist fullkomlega. — Ljósmynd/Google
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Síðustu viku lauk með tapi íslenska landsliðsins í fótbolta karla gegn Englendingum, sem var hálfu sárara fyrir það að leiknum hefði allt eins getað lyktað með jafntefli.

Síðustu viku lauk með tapi íslenska landsliðsins í fótbolta karla gegn Englendingum, sem var hálfu sárara fyrir það að leiknum hefði allt eins getað lyktað með jafntefli.

Aðrar fréttir tengdar leiknum reyndust þó fyrirferðarmeiri, en þær greindu frá heimsókn tveggja íslenskra stúlkna, áhrifavalda, inn á hótelherbergi tveggja ensku leikmannanna. Það þótti ekki nógu gott í ljósi þess að fótboltamennirnir áttu að vera í sóttkví. Af þessu spannst talsverð fjölmiðlaumfjöllun í bresku götupressunni, en enn frekar þó í hinum íslenska afkima félagsmiðla, þar sem farísear af ýmsum stærðum og gerðum býsnuðust yfir ástandinu og spöruðu ekki fúkyrðin.

Á sunnudag greindi svo Halldór Björnsson veðurfræðingur frá því að skaflinn í Esjunni hyrfi ekki þetta sumarið. Ekki seinna vænna að það komi fram á þessu annars snjólétta sumri.

Víða erlendis gætti óþreyju gagnvart sóttvarnaráðstöfunum stjórnvalda og þeim mótmælt á götum úti í mörgum borgum Evrópu. Áhrif á þjóðlíf og efnahag enda mikil og lítil bjartsýni á að veirunni verði útrýmt í bráð. Smitum hefur fjölgað töluvert í mörgum löndum síðustu daga og vikur og harðari aðgerðir kynntar til þess að mæta því, en í sama mund kom fram að tilraunum með eitt af bóluefnunum væri slegið á frest.

Á Íslandi létu menn sér hins vegar nægja að malda í móinn, en þrátt fyrir að sumum þyki tvöföld skimun og sóttkví komufarþega fullmikið af því góða, þá sýnir alþjóðlegur samanburður að á Íslandi eru aðgerðirnar fremur hófstilltar og virðast til þessa hafa skilað ágætum árangri.

Eilítið var slakað á klónni af hálfu stjórnvalda, þegar hámarksfjöldi á samkomum var hækkaður úr 100 í 200 og tekin upp 1 metra regla í stað 2 metra. Þetta er talið koma sér sérstaklega vel fyrir menningarlífið, sem hefur verið miklum takmörkunum háð.

·

Vinnumálastofnun bárust um 1.200 umsóknir um atvinnuleysisbætur í fyrstu viku september, en þar á bænum er búist við um 3.000 umsóknum í mánuði fram að áramótum. Atvinnuleysi í ágúst er talið hafa verið 8,6% og búist er við að það aukist ögn í þessum mánuði.

Við uppgjör við þinglok kom á daginn að Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, var ræðukóngur á liðnu þingi, talaði í 1.840 mínútur eða nær 31 klukkustund. Sem er hálfu meira afrek í ljósi þess að enginn man eftir að hann hafi flutt neina ræðu.

Þrátt fyrir allt tal stjórnmálamanna um að nú ríði á að atvinnulífið herði sig í verðmætasköpun til þess að vinna upp kórónutjónið virðist sem þær fyrirbænir hreyfi lítið við embættismönnum. Þannig hefur Kalkþörungaverksmiðjan ekki getað ráðist í fjárfestingar og atvinnusköpun á Bíldudal og í Súðavík vegna ótrúlega langs leyfisveitingaferlis, án þess þó að séð verði að einhverjar málefnalegar ástæður séu fyrir því.

Þá kom fram að mikill fjöldi umsókna um alls kyns atvinnustarfsemi liggur óafgreiddur hjá Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun. Jón Gunnarsson þingmaður lagði fram fyrirspurn fyrir nokkra ráðherra um það í vor, en samt náði aðeins einn ráðherra að svara á dögunum, löngu eftir tilskilda fresti. Það er þetta með orðið og borðið.

·

Það hélaði í morgunkaffi lesenda Morgunblaðsins í vikunni, þegar þar stóð með stríðsletri að skuldakreppa væri í aðsigi. Það var haft eftir Íslandsvininum Lee Buchheit, en við nánari lestur ítarlegs viðtals við hann kom í ljós að þar var hann að fjalla um heimsbyggðina almennt. Gat þess hins vegar að Ísland skæri sig blessunarlega úr að þessu leyti.

Önnur glæta birtist í því að erlend kvikmyndaver eru aftur farin að leita til Íslands í kvikmyndatökur. Sjónvarpsáhorf í heiminum hefur aukist í faraldrinum og aukin eftirspurn er eftir slíku efni. Lækkandi gengi krónunnar sé svo farið að heilla á ný.

Mörgum brá í brún við frétt þess efnis að kirkjugarðar ættu líka að vera fyrir lifandi fólk. Þar var þó hvorki átt við kviksetningar né upprisu hinna lifandi dauðu, heldur var þar verið að vitna í Smára Sigurðsson, framkvæmdastjóra Kirkjugarða Akureyrar, sem vill að meiri áhersla verði lögð á að kirkjugarðarnir nýtist til útivistar og kyrrlátra stunda hinna lifandi gesta þeirra.

Kórónuveiran hefur ekki aðeins áhrif á ferðalög fólks, því í ljós kom að póstsendingar hafa riðlast mikið af hennar völdum, pakkasendingar alveg sérstaklega. Þannig geta pakkar héðan verið lengi á leið úr landi og mjög misjafnt hvað tekur við úti í heimi. Sömuleiðis hafa pakkasendingar að utan verið í miklu ólagi og dæmi um margra vikna bið eftir þeim. Alls er óvíst hvenær ástandið lagast, en varla fyrr en veiran er að mestu gengin hjá.

Ísland skíttapaði fyrir Belgíu í fótbolta, en engum sögum fór af hótelheimsóknum.

·

Hluthafafundur Icelandair samþykkti heimild til þess að hækka hlutafé félagsins í 23 milljarða króna og útgáfu áskriftarréttinda. Hlutafjárútboðið fer fram á miðvikudag og fimmtudag í vikunni sem nú er að hefjast.

Verndað hús við Skólavörðustíg var rifið í óleyfi að sögn Nikulásar Úlfs Mássonar, byggingarfulltrúa í Reykjavík. Húsið naut verndar byggðamynsturs, þó sjálft væri það lítið augnayndi og margsinnis tekið þeim breytingum í áranna rás, að lítið var eftir af hinu upprunalega húsi. Eigandinn bar fyrir sig að hann hefði leyfi til endurbyggingar þess að hluta, en að í ljós hefði komið að húsið væri í mun verra ásigkomulagi en talið var og það því rifið en yrði endurreist í upphaflegri mynd.

Þrátt fyrir pláguna kom í ljós að dánartíðni hjá fólki yfir sjötugt var lægri fyrstu 33 vikur ársins en á sama tímabili undanfarin ár. Þróunin var innan tölfræðilegra vikmarka, en þótti athyglisverð samt. Haraldur Briem taldi að mögulega hefðu bættar smitvarnir haft sín áhrif, en eins hefði inflúensa í ár verið vægari en oftast.

Netárásir af ýmsu tagi hafa færst í vöxt að undanförnu, en umfang þeirra er þó sjálfsagt fæstum ljóst. Hrafnkell Viðar Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, telur hugsanlegt að á annan tug milljarða króna tapist árlega hér á landi af þeim völdum.

Seðlabanki Íslands greip til ráðstafana vegna fallandi gengis krónunnar og hyggst fylgja áætlun um sölu á erlendum gjaldeyri fram að áramótum. Sömuleiðis sé skilningur á því að lífeyrissjóðirnir veiki ekki gengið og haldi að sér höndum í gjaldeyriskaupum.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra kynnti „Loftbrúna“ svokölluðu, sem er stuðningsaðgerð við innanlandsflug, sem felst í því að ríkið veitir afsláttarkjör á flugmiðum til fólks með lögheimili úti á landi. Þetta sagði samgönguráðherra, sem sjálfur er með lögheimili úti á landi, „mikið réttlætismál“. Jú, það er mikið réttlætismál að þeir sem ekki fljúga borgi fyrir þá sem fljúga.

Samherji og Seðlabanki Íslands tókust á í dómssal í skaðabótamálum vegna Seðlabankamálsins svokallaða. Samherji segist hafa orðið fyrir miklu tjóni vegna áralangra misheppnaðra rannsóknaraðgerða Seðlabankans. Þá hafi hann borið mikinn kostnað af því að bera af sér sakirnar. Seðlabankinn vill ekkert borga.

Líkt og lóan kemur á vorin, kemur lúsin á haustin. Það er komið haust.

Reykjavíkurborg hyggst reisa íþróttamannvirki fyrir rúma 20 milljarða króna í borginni á næsta áratug. Þar verður Laugardalurinn í forgangi, en önnur hverfi verða ekki út undan.

Makrílvertíðin hefur verið góð og hefur fiskast fyrir um 25 milljarða króna. Lítið af honum kom hins vegar inn fyrir íslenska fiskveiðilögsögu, svo það þurfti að sigla nokkuð langt eftir honum.

·

Eftirlaunasjóður atvinnuflugmanna lýsti áhuga á því að fjárfesta í Icelandair, en þar að baki eru um eitt þúsund sjóðfélagar með um 48 milljarða króna hreina eign. Ekkert er ákveðið í þeim efnum, en við blasir að fáir hópar þekkja betur til félagsins, fluggeirans og mögulegra tækifæra endurreists félags.

Úr fluggeiranum var það annars að frétta að Bogi Guðmundsson, fv. sölu- og markaðsstjóri hins óstofnaða flugfélags Play, gerði kröfu um gjaldþrotaskipti félagsins vegna vangoldinna launa og láns sem hann veitti félaginu.

Samherji sendi útvarpsstjóra bréf, þar sem málsmeðferð kæru félagsins til siðanefndar Ríkisútvarpsins var mótmælt. Þar reyndist engin siðanefnd vera að störfum, svo útvarpsstjóri þarf að skipa nýja slíka. Það þykir Samherja ekki gefa miklar vonir um óhlutdræga umfjöllun hennar, enda meirihluti nefndarinnar skipaður af innanhússmönnum í Efstaleiti.

18 ára gömul stúlka, Kamilla Ívarsdóttir, greindi frá reynslu sinni af því að vera föst í ofbeldissambandi og birti myndir af því hvernig hún hefði verið leikin eftir barsmíðar fyrrverandi unnusta síns. Af spunnust miklar umræður um úrræði vegna slíkra ofstopamanna.

Róbert Spanó, forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, sætti áfram mikilli gagnrýni fyrir heimsókn sína til Tyrklands, þar sem honum var sýndur ýmis sómi af harðstjórn Erdogans. Fyrir réttinum liggja um tíu þúsund mál vegna mannréttindabrota sömu stjórnar.