Fyrri hluti endurminninga Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, kemur út fljótlega eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Bókin nefnist A Promised Land og verður 768 síður.

Fyrri hluti endurminninga Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, kemur út fljótlega eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Bókin nefnist A Promised Land og verður 768 síður.

Útgefandinn, Penguin Random House, segir fyrsta upplag verða um þrjár milljónir eintaka og kemur bókin samtímis út á 25 tungumálum. Í bókinni fjallar Obama um stjórnmálaferilinn, forsetaframboð sitt og tímann fram að falli Osama bin Laden árið 2011.