Hvalfjörður Þörf er á tillitssemi.
Hvalfjörður Þörf er á tillitssemi.
Unnið er að uppsetningu kantljósa í Hvalfjarðargöngum og er unnið við verkið frá klukkan 22 á kvöldin til 6.30 á morgnana. Vegfarendur eru beðnir að sýna tillitssemi meðan á verkinu stendur, en verklok eru áætluð 15. október.

Unnið er að uppsetningu kantljósa í Hvalfjarðargöngum og er unnið við verkið frá klukkan 22 á kvöldin til 6.30 á morgnana. Vegfarendur eru beðnir að sýna tillitssemi meðan á verkinu stendur, en verklok eru áætluð 15. október. Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að of oft sýni ökumenn ekki nægilega tillitssemi í kringum vinnusvæðið, sem geti skapað hættu fyrir starfsmenn.

Uppsetning kantljósanna var boðin út í vor og bauð Orkuvirki lægst og vinnur verkið. Sett verða upp LED-ljós með 25 metra millibili og koma þau í stað vegstika í göngunum. Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að slík ljós spari bæði tíma og fyrirhöfn því þrífa þurfti vegstikur mánaðarlega með sérstökum vélum í göngunum. Ljósin auki einnig öryggi og gagnist sem rýmingarlýsing ef reykur kemur í göngin.

Sex til átta manns á vegum Orkuvirkis vinna að gerð kantlýsingarinnar á nóttunni. Einni akrein er lokað í senn á 200 til 300 metra kafla. Sett eru upp umferðarmerki, umferð stýrt með ljósamerkjakerru, ökumenn varaðir við með blikkandi ljósum við gangamunnana og hraði lækkaður.