50 ára Anna Ósk er fædd og uppalin í Keflavík en býr núna í Árbæ í Reykjavík. Anna Ósk er deildarstjóri mannauðsdeildar í utanríkisráðuneytinu. Anna Ósk hefur áhuga á þjóðfélagsmálum, íþróttum, útivist, hlusta mikið á hlaðvörp, lestur og samveru með fjölskyldu og vinum.
Maki: Helgi Skúlason, flugstjóri hjá Atlanta, f. 1964.
Börn: Kolbrún Jóna, f. 2001 og Skúli Sturla, f. 2006.
Foreldrar: Kolbeinn Pálsson verslunarmaður, f. 1934, d. 2007 og Kolbrún Sigurðardóttir skrifstofumaður, f. 1939. Hún býr í Keflavík.