Samið Lögreglumenn og ríkið hafa náð saman um nýjan kjarasamning.
Samið Lögreglumenn og ríkið hafa náð saman um nýjan kjarasamning. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Við töldum á þessum fundi að lengra yrði ekki komist, og að það yrði að setja þetta í kosningu félagsmanna,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, í samtali við mbl.is.

„Við töldum á þessum fundi að lengra yrði ekki komist, og að það yrði að setja þetta í kosningu félagsmanna,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, í samtali við mbl.is.

Samninganefnd sambandsins skrifaði á miðvikudag undir nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkisins. Fyrri kjarasamningur rann út 1. apríl 2019.

„Þetta er búið að taka ansi langan tíma, þó ég sé ekki viss um að þetta sé óvenjulegt miðað við aðra samninga,“ segir Snorri. Hann segir að kjaraviðræður við lögreglumenn hafi oft dregist á langinn, og að forsvarsmenn LL hafi ítrekað gert athugasemdir við ferlið.

„Lögreglumenn sitja þarna lengi sem embættismenn án verkfallsréttar og bíða eftir að gerðir séu samningar við alla í kringum okkur. Og loksins þegar kemur að okkur verður allt að gerast á einhverjum undrahraða,“ segir Snorri.

Samningurinn er lagður fram samhliða lífskjarasamningi og inniheldur einnig launaþróunartryggingu og nýjan stofnanasamning.

Landssambandið vinnur nú að kynningarefni um samninginn, en stefnt er að því að niðurstaða atkvæðagreiðslu muni liggja fyrir við lok næstu viku.