Stefanía Guðrún Halldórsdóttir
Stefanía Guðrún Halldórsdóttir
Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, hefur verið ráðin til Eyrir Venture Management til þess að leiða nýjan vísisjóð sem Eyrir er að hleypa af stokkunum, Eyrir Sprotar II.
Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, hefur verið ráðin til Eyrir Venture Management til þess að leiða nýjan vísisjóð sem Eyrir er að hleypa af stokkunum, Eyrir Sprotar II. Í tilkynningu frá Eyri segir að Eyrir Sprotar II, muni sérhæfa sig í að styðja við uppbyggingarferli íslenskra sprotafyrirtækja. „Ég er afskaplega spennt fyrir því að efla og vinna að framgangi nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Íslandi,“ segir Stefanía í tilkynningunni.