Heima með Helga Björns Matthías Stefánsson fór á kostum á fiðlunni.
Heima með Helga Björns Matthías Stefánsson fór á kostum á fiðlunni. — Ljósmyndir/Mummi Lú
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Þátturinn Heima með Helga í beinni útsendingu Sjónvarps Símans létti landsmönnum lund í samkomubanninu vegna kórónuveirufaraldursins og listafólkið hélt uppteknum hætti í þriðju seríu, sem hófst síðastliðið laugardagskvöld. „Það var gaman að koma inn í þetta,“ segir Matthías Stefánsson, fiðlu- og gítarleikari, sem lék í fyrsta sinn með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna í þáttunum.

Samstarf Matthíasar og Helga Björns er samt ekki nýtt af nálinni. „Ætli fyrsta giggið með Helga hafi ekki verið á 20 ára afmælistónleikum Sssól í desember 2007,“ segir hann. Bætir við að hann hafi verið í Reiðmönnum vindanna í upphafi og spilað á plötum bandsins. „Ég hef lengi verið á kantinum hjá Helga.“

Kvöldvaka Helga er með öðrum hætti nú en fyrri seríur. Ingólfur Sigurðsson lék til dæmis á venjulegt trommusett á laugardag en ekki á cajun-trommurnar og ný vídd kom með Matthíasi, sem tók í fiðluna og gítarinn jöfnum höndum. „Ég held að strákarnir hafi viljað breyta aðeins hljómnum með því að fara yfir á settið, bæta við rafgítar og fá mig inn,“ segir hann um innkomuna. Bætir við að það sé alltaf sérstakt að vera í beinni útsendingu sjónvarps og það krefjist aukakrafts. „Orkan leynir sér ekki og það er alltaf spennandi þegar græna ljósið kviknar. Eftir það verður ekki aftur snúið.“

Nýtt lag á Spotify

Matthías er enginn nýgræðingur í tónlistinni. Hann hefur starfað sem tónlistarmaður frá því hann lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 2002 auk þess sem hann hefur reglulega kennt á fiðlu og gítar. Hann hefur unnið með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins, meðal annars með Björk, SigurRós, Björgvini Halldórssyni og Siggu Beinteins, og spilað á yfir 150 geisladiskum. Ennfremur hefur hann tekið þátt í fjölda tónlistaruppfærslna hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku óperunni, Íslenska dansflokknum, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Caput og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Fyrir um áratug gekk Matthías í hljómsveitina Papa frá Vestmannaeyjum og kemur bandið reglulega fram við ýmis tækifæri. „Svo spila ég líka með Sycamore Tree.“ Við þetta má bæta að Matthías spilar reglulega í jarðarförum, en þær voru ekki á döfinni í fyrstu. „Ég byrjaði fimm ára að læra á þessa spýtu og hef sargað á hana síðan,“ segir hann um fiðluleikinn. „Móðursystir mín er fiðluleikari, systir mín spilaði á selló og ég var settur á fiðlu.“ Um fermingaraldurinn hafi gítarinn komið til sögunnar. „Móðurbróðir minn sagði að ég ætti ekki að vera að glamra á fiðlu, gítarinn væru miklu flottari. Hann kenndi mér fyrstu gripin og við tókum „House of the rising Sun“ í fermingarveislunni.“

Matthías hefur lengst af spilað meira fyrir aðra en sjálfan sig. „Fyrir bragðið á ég mörg lög sem hafa orðið út undan, en vegna kórónuveirufaraldursins hef ég gefið mér tíma til að skoða í kistuna og á dögunum setti ég lagið „Beginning of the End“ inn á Spotify.“ Hann útskýrir að lagið hafi verið hugsað sem forleikur að stærra verkefni, sem hann hafi hugsað sér að gera en ekkert orðið enn úr.

„Veiran hefur gert það að verkum að ég hef haft tíma til þess að dusta rykið af hinu og þessu og fleiri lög eru væntanleg inn á Spotify á næstunni.“