30 ára Helga fæddist í Reykjavík og býr núna á Seltjarnarnesinu. Helga er enskukennari í Verslunarskóla Íslands, þar sem hún byrjaði fyrir fjórum árum. Hennar helstu áhugamál eru skíði og ferðalög, fjallgöngur og samvera með fjölskyldu og vinum.

Maki: Þorsteinn Rafn Halldórsson Snæland, f. 1985, sérfræðingur í áhættustýringu hjá Kviku.

Foreldrar: Ása Helga Ólafsdóttir, f. 1953, lífeindafræðingur og rak einnig verslunina Polarn O. Pyret í Kringlunni í mörg ár, og Benedikt Sigurðsson, f. 1952, lögfræðingur. Þau búa á Seltjarnarnesi.