Garðabær Valsmaðurinn Lasse Petry og Stjörnumaðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson í baráttunni á Samsung-vellinum í gærkvöld.
Garðabær Valsmaðurinn Lasse Petry og Stjörnumaðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson í baráttunni á Samsung-vellinum í gærkvöld. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótboltinn Víðir Sigurðsson vs@mbl.is FH virðist vera eina liðið sem getur elt Valsmenn í baráttunni um Íslandsmeistaratitil karla 2020.

Fótboltinn

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

FH virðist vera eina liðið sem getur elt Valsmenn í baráttunni um Íslandsmeistaratitil karla 2020. Átta stig skilja liðin reyndar að en það merkilega er að þau eiga eftir báða sína leiki á tímabilinu og sá fyrri er einmitt á dagskránni á fimmtudaginn kemur, eftir aðeins tvo daga, í Kaplakrika.

Valsmenn fór á kostum gegn Stjörnunni í Garðabæ þar sem þeir skoruðu fimm mörk á fyrsta hálftímanum og unnu að lokum 5:1. Patrick Pedersen og Aron Bjarnason splundruðu Stjörnuvörninni hvað eftir annað, skoruðu tvö mörk hvor, Pedersen lagði upp bæði mörk Arons, sem á móti krækti í vítaspyrnu handa Dananum og lagði upp fimmta markið fyrir Birki Má Sævarsson . Hrein sýning og það sem eftir var af leiknum var formsatriði. Fyrsta tap Stjörnumanna kom í þeirra þrettánda leik og þá var hreinlega um hrun að ræða.

„Yfirburðir Valsmanna voru fáheyrðir, og sérstaklega þá í fyrri hálfleik. Þá skal þess getið að Valsmenn skoruðu þrjú mörk til viðbótar þessum fimm, sem dæmd voru af vegna rangstöðu,“ skrifaði Stefán Gunnar Sveinsson m.a. um leikinn á mbl.is.

* Patrick Pedersen jafnaði Atla Guðnason í 21.-22. sæti yfir markahæstu menn deildarinnar frá upphafi en þeir hafa gert 68 mörk hvor. Pedersen er kominn með 13 mörk og er jafn Steven Lennon í slagnum um markakóngstitilinn.

* Haukur Páll Sigurðsson og Kristinn Freyr Sigurðsson voru báðir í leikbanni en fjarvera þeirra virtist ekki hafa mjög slæm áhrif á Valsliðið.

Björn kominn í gang?

Björn Daníel Sverrisson , fyrirliði FH, fór fyrir sínum mönnum og skoraði tvö fyrstu mörkin í góðum útisigri Hafnfirðinganna á Fylki í Árbænum, 4:1.

Þetta eru fyrstu mörk Björns í deildinni á tímabilinu og góðs viti fyrir FH-inga ef hann er að ná sér á strik.

FH-ingar hafa nú unnið fjóra leiki í röð og sex leiki af sjö og halda sínu striki undir stjórn Eiðs Smára Guðjohnsens og Loga Ólafssonar sem hafa rifið liðið upp úr meðalmennsku og komið því á beina braut á undanförnum vikum.

„Úrslit leiksins eru kannski svolítið undarleg ef menn skoða tölurnar yfir skottilraunir. Fylkismenn áttu sautján tilraunir og bæði lið gátu því skorað mörg mörk. Gunnar Nielsen lék mjög vel í marki FH og það getur virkað sérstakt að nefna það sérstaklega þegar lið vinnur 4:1. En það á alveg við í þessu tilfelli,“ skrifaði Kristján Jónsson m.a. um leikinn á mbl.is.

* Ólafur Karl Finsen skoraði sitt fyrsta mark í deildinni fyrir FH en hann hafði áður skorað í bikarnum. Hann hefur þá gert mörk fyrir fjögur félög í deildinni en áður voru það Selfoss, Stjarnan og Valur.

KR með Blikana í vasanum

KR-ingar unnu Breiðablik í þriðja sinn á tímabilinu og sigur meistaranna í Kópavogi, 2:0, var verðskuldaður. Þeir fóru þar með uppfyrir Blikana á markatölu og eiga líka leik til góða. Eins og deildin er að þróast stefnir í jafna baráttu KR, Stjörnunnar og Breiðabliks um þriðja sætið og eitt öruggt Evrópusæti.

„KR-ingar unnu nokkra 1:0-sigra á síðustu leiktíð þegar þeir urðu Íslandsmeistarar og sigurinn í kvöld minnti svo sannarlega á marga leiki liðsins frá því á síðustu leiktíð,“ skrifaði Bjarni Helgason m.a. um leikinn á mbl.is.

* Ægir Jarl Jónasson skoraði sitt fyrsta mark í deildinni í ár fyrir KR þegar hann kom liðinu yfir. Hann hefur hinsvegar skorað fimm mörk fyrir Vesturbæinga í bikarkeppninni.

Nýtt leikjamet hjá Óskari

* Óskar Örn Hauksson , fyrirliði KR, er orðinn leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Hann lék sinn 322. leik í gærkvöld og fór með því fram úr Birki Kristinssyni sem lék 321 leik á sínum tíma. Nánar er fjallað um metið á mbl.is/sport.

* Kristinn Jónsson , félagi Óskars á vinstri vængnum hjá KR, náði líka áfanga því hann lék sinn 200. leik í efstu deild, á sínum gamla heimavelli í Kópavogi.

Fjörugt jafntefli í Fossvogi

Víkingur og HK skildu jöfn, 1:1, í nokkuð fjörugum leik í Fossvogi þar sem mörkin tvö létu þó bíða eftir sér.

Þá skoruðu HK-ingurinn Bjarni Gunnarsson og Víkingurinn Ágúst Eðvald Hlynsson með fjögurra mínútna millibili.

HK er þar með í sjöunda sætinu og „á toppnum“ í neðri hluta deildarinnar en Víkingarnir sitja áfram uppi með aðeins þrjá sigra í fjórtán leikjum á tímabilinu.

* Ívar Örn Jónsson , vinstri bakvörður HK, fékk rauða spjaldið á sínum gamla heimavelli seint í leiknum og verður því í banni þegar HK sækir KA heim á fimmtudaginn.

„Liðin geta svo sem vel við unað að fá sitt hvort stigið en miðað við hraðan leik og ágætis færi er það ekki mikið,“ skrifaði Stefán Stefánsson m.a. um leikinn á mbl.is.

Lauk fallslagnum á Akranesi?

Skagamenn unnu langþráðan sigur, 3:0, gegn Gróttu, og héldu hreinu í fyrsta sinn síðan þeir unnu Seltirningana 4:0 í fyrri umferðinni. Þar með má segja að dagskránni sé endanlega lokið í fallbaráttunni. Grótta varð að sækja eitthvað á Akranes til að vera enn með í baráttunni.

Vissulega eiga Ágúst Þór Gylfason og hans menn enn möguleika á 28 stigum en þeir þurfa heldur betur að snúa blaðinu við.

„Það var jákvætt fyrir ÍA að Tryggvi Hrafn Haraldsson spilaði vel og þá eru ungir Skagamenn á borð við Gísla Laxdal Unnarsson að nýta tækifærið vel sömuleiðis. Það vantar ekki efniviðinn á Skaganum,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um leikinn á mbl.is.

* Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði úr hornspyrnu og vítaspyrnu og er markahæstur Skagamanna í deildinni í ár með 8 mörk.

* Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild þegar hann kom ÍA í 2:0.

STJARNAN – VALUR 1:5

0:1 Patrick Pedersen 4.

0:2 Patrick Pedersen 18.(v)

0:3 Aron Bjarnason 21.

0:4 Aron Bjarnason 31.

0:5 Birkir Már Sævarsson 34.

1:5 Sölvi Snær Guðbjargarson 63.

MM

Aron Bjarnason (Val)

Patrick Pedersen (Val)

M

Birkir Már Sævarsson (Val)

Sigurður Egill Lárusson (Val)

Lasse Petry (Val)

Einar Karl Ingvarsson (Val)

Valgeir Lunddal Friðriksson (Val)

Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjörn.)

Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)

Dómari : Ívar Orri Kristjánsson – 7.

Áhorfendur : Um 400.

BREIÐABLIK – KR 0:2

0:1 Ægir Jarl Jónasson 10.

0:2 Sjálfsmark 83.

M

Beitir Ólafsson (KR)

Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)

Kennie Chopart (KR)

Ægir Jarl Jónasson (KR)

Kristinn Jónsson (KR)

Atli Sigurjónsson (KR)

Stefán Árni Geirsson (KR)

Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)

Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki)

Davíð Ingvarsson (Breiðabliki)

Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)

Dómari : Erlendur Eiríksson – 8.

Áhorfendur : 252.

VÍKINGUR R. – HK 1:1

0:1 Bjarni Gunnarsson 75.

1:1 Ágúst Eðvald Hlynsson 79.

M

Davíð Örn Atlason (Víkingi)

Kári Árnason (Víkingi)

Júlíus Magnússon (Víkingi)

Atli Barkarson (Víkingi)

Erlingur Agnarsson (Víkingi)

Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)

Bjarni Gunnarsson (HK)

Jón Arnar Barðdal (HK)

Atli Arnarson (HK)

Ívar Örn Jónsson (HK)

Þórður Þorsteinn Þórðarson (HK)

Martin Rauschenberg (HK)

Rautt spjald : Ívar Örn Jónsson (HK) 83.

Dómari : Egill Arnar Sigurþórsson – 8.

Áhorfendur : 270.

FYLKIR – FH 1:4

0:1 Björn Daníel Sverrisson 48.

0:2 Björn Daníel Sverrisson 59.

0:3 Ólafur Karl Finsen 61.

1:3 Arnór Gauti Ragnarsson 64.

1:4 Sjálfsmark 69.

MM

Björn Daníel Sverrisson (FH)

M

Sam Hewson (Fylki)

Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylki)

Gunnar Nielsen (FH)

Þórir Jóhann Helgason (FH)

Jónatan Ingi Jónsson (FH)

Ólafur Karl Finsen (FH)

Dómari : Sigurður H. Þrastarson – 6.

Áhorfendur : Ekki gefið upp.

ÍA – GRÓTTA 3:0

1:0 Tryggvi Hrafn Haraldsson 26.

2:0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson 82.

3:0 Tryggvi Hrafn Haraldsson 87. (v).

M

Árni Snær Ólafsson (ÍA)

Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)

Sindri Snær Magnússon (ÍA)

Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)

Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)

Ólafur Karel Eiríksson (Gróttu)

Bjarki Leósson (Gróttu)

Axel Freyr Harðarson (Gróttu)

Dómari : Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.

Áhorfendur : Um 100.

* Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.