Guðný Sigurðardóttir fæddist 7. júlí 1927 í Kálfshamarsvík á Skaga. Hún lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 8. september 2020.

Foreldrar hennar voru Guðbjörg Guðjónsdóttir, f.7.10. 1892, d. 5.12. 1965, og Sigurður Finnbogason Júlíusson, f. 6.10. 1888, d. 23.1. 1980. Systkini hennar: Sigurbjörg, f. 16.2. 1925, d. 27.2. 1925. Fjóla, f. 8.8. 1926, d. 15.5. 2012. Sólveig, f. 18.5. 1928, d. 10.6. 1928. Hallgrímur, f. 14.7. 1931, d. 18.5. 2006. Birna, f. 20.8. 1932, d. 5.12. 2011, og Páll Gunnar, f. 30.6. 1936, er búsettur í Perth í Ástralíu.

Guðný giftist Hallgrími Ólafsyni málara og vélstjóra þann 31.12. 1955, f. 21.10. 1924, d. 26.9. 2009. Foreldrar Hallgríms voru Guðmundína Einarsdóttir, f. 15.12. 1901, d. 4.9. 1987, og Ólafur Matthías Samúelsson, f. 21.5. 1890, d. 17.9. 1960.

Börn Guðnýjar og Hallgríms eru 1) Guðmundína. Maki Matthías Pálsson. Börn: a) Páll Þorgeir, maki Gunnvör Braga Jónsdóttir. Þau eiga fjóra syni og eitt barnabarn. b) Kári Þór, maki Maibritt Hansen. Þau eiga fjórar dætur. c) Matthías Freyr, maki Sigríður Didda Aradóttir. Matthías á eina dóttur og Sigríður Didda á tvö börn. 2) Ólafur Hallgrímsson. Maki Bryndís Bragadóttir. Börn Ólafs og Sigþóru Gunnarsdóttur: a) Hallgrímur; maki Matthildur Magnúsdóttir. Þau eiga tvo syni en fyrir átti Hallgrímur eina dóttur. b) Gunnar Hafsteinn, maki Kristín Björg Jónsdóttir. Þau eiga þrjú börn. c) Jón Valur, maki Helene Tyvold. Þau eiga tvö börn. d) Guðný Birna, sambýlismaður Elías Viktor Lárusson. Þau eiga eina dóttur en fyrir á Elías tvö börn. Bryndís á tvö börn, Hannes, og Halldóru, sem á tvö börn. 3) Hörður, maki Geirlaug Jóna Rafnsdóttir. Börn: a) Klara Árný, sambýlismaður Roger Sjöström. b) Guðni Rafn. c) Davíð Örn. Einnig eignuðust Guðný og Hallgrímur tvíbura, dreng og stúlku 1959, en þau létust samdægurs.

Fyrstu fimm árin bjó Guðný í Kálfshamarsvík en þá fluttist fjölskyldan til Skagastrandar. Guðný flutti til Akraness 15 ára til að vinna fyrir sér, en foreldrar hennar fluttu þangað stuttu síðar. Þar kynnist hún manni sínum en hann og bróðir hans Samúel höfðu fengið leigt herbergi hjá föður hennar og fengu hvor sína dótturina í kaupbæti, en Samúel varð eiginmaður Fjólu. Guðný og Hallgrímur bjuggu fyrst í Reykjavík meðan hann var í málaranámi en fluttust síðan á Akranes.

Fyrstu starfsárin vann hún á hótelum og veitingastöðum. Auk heimilisstarfa á Akranesi sá hún um kostgangara, vann við fiskvinnslu, veitingarekstur og í eldhúsi sjúkrahússins. Guðný og Hallgrímur tóku föður Guðnýjar til sín þegar kona hans lést og dvaldi hann hjá þeim til æviloka.. Guðný hélt alla tíð mikilli tryggð við systkini sín og bar mikla umhyggju fyrir þeim. Guðný söng í fjölda ára með kór eldri borgara á Akranesi auk þess að taka virkan þátt í félagsstarfi og stjórn kórsins.

Útför Guðnýjar fer fram í dag, 22. september 2020, frá Akraneskirkju kl. 13. Streymt verður frá útförinni á vef Akraneskirkju: www.akraneskirkja.is/.

Virkan hlekk á útför má nálgast á https://www.mbl.is/andlat/.

Móðir mín, mildin þín studdi mig fyrsta fetið.

Mamma er konan sem heldur í höndina á manni fyrstu árin en hjartað alla ævi. Þetta eru orð að sönnu og koma upp í hugann núna þegar móðir mín blessunin hefur yfirgefið sviðið og haldið til Sumarlandsins að vitja genginna ástvina. Þó að árin séu orðin mörg og vitað er að endalokin nálgast þá er alltaf erfitt að kveðja móður sína. Eins og kemur fram í ágripinu efst var mamma fædd 7.7. 1927 og því orðin 93 ára síðan í júlí síðastliðnum. Daginn eftir 90 ára afmælið sitt fluttist hún á Dvalarheimilið Höfða á Akranesi en fram að því bjó hún í sínu eigin húsi og sá um sig sjálf.

Mamma hugsaði vel um drenginn sinn og okkur krakkana. Ein saga er til af því þegar pabbi var í landi og hafði farið með mig í barnavagni upp í mjólkurbúð. Síðan kemur hann til baka og fer inn í stofu að lesa blaðið. Mamma hefur eflaust haldið að ég væri í vagninum fyrir utan en svo seinna uppgötvar hún að þar er enginn vagn. Hún kallar á Halla og beinlínis öskrar: „Hvar er strákurinn?“ „Ha, strákurinn, nú kom ég ekki með hann? Hann hlýtur þá að vera uppi í mjólkurbúð.“ Það hefur verið strangt augnaráð sem fylgdi skömmustulegum föður arka í skyndi upp í mjólkurbúð að athuga með drenginn. Það skal tekið fram að ekkert amaði að drengnum, hann hafði eignast aðdáendur því konurnar í hverfinu höfðu raðað sér í kringum vagninn og voru að dást að þessum væra og fallega dreng.

Einn veturinn tók mamma kostgangara í fæði til þess að drýgja tekjurnar og fékk mikið hrós fyrir ljúffengan mat og þetta varð hennar ævistarf, að stússa í matargerð, fyrir utan nokkur ár sem hún vann í frystihúsi. Hún rak sjoppu með systurdóttur sinni og einnig rak hún matsölu um tíma áður en hún hóf að vinna við eldhúsið á sjúkrahúsinu þar sem hún vann óslitið þar til hún fór á eftirlaun.

Fyrstu búskaparárin mín bjó ég í nágrenni við mömmu og eldri strákarnir okkar urðu þar heimagangar enda alltaf velkomnir til afa og ömmu. Nú að leiðarlokum hugsa ég með hlýju og virðingu til móður minnar. Eftir að ég og fyrri konan mín skildum hélt ég heimili með mömmu um árabil en á þeim árum vann ég á sjó erlendis og var ekki mikið heima. Við áttum skap saman og oft var glatt á hjalla hjá okkur, einnig var gott að geta rétt henni hjálparhönd með ýmislegt og sérstaklega allar suðurferðirnar þegar hún þurfti til lækninga. Ég vil þakka Mundu systur og Gillu Jónu tengdadóttur mömmu fyrir einstaka umhyggju í hennar garð síðustu árin og einnig Dagnýju Fjólu fyrir þeirra fallegu vináttu og sömuleiðis Guðna vini mínum Þórðarsyni og hans börnum tryggð þeirra við hana. Farðu í friði mamma mín og takk fyrir allt.

Þinn sonur,

Ólafur Hallgrímsson.

Heyr mína bæn, mildasti blær,

berðu kveðju mína' yfir höf.

Syngdu honum saknaðarljóð.

Vanga hans blítt vermir þú sól.

Vörum mjúkum kysstu hans brá,

ástarorð hvísla mér frá.

(Ólafur Gaukur)

Elsku amma Gauja kvaddi södd lífdaga 8. september síðastliðinn. Ég er þér svo afskaplega þakklátur fyrir ótal margt en vináttu þína allra helst. Það voru ófáar stundirnar sem við sátum saman í eldhúsinu á Dalbrautinni eða inni í stofu og ræddum saman um lífið, tilveruna, pólitík og allt sem lífið hefur upp á að bjóða. Þegar ég var hvað týndastur í mínum hugrenningum var ætíð gott að tala við þig, því aldrei voru þær hugrenningar dæmdar eða teknar niður. Ekki varstu þó skoðanalaus, sem betur fer en þér tókst ætíð að ræða við mig af virðingu. Við gátum hlegið saman og afskaplega var nú gaman að hlæja með þér. Að horfa á spennuþætti í sjónvarpinu var líka skemmtun út af fyrir sig því þú áttir það til að segja persónum í sjónvarpsþættinum frá því hvað væri að gerast í kringum þær og vara þær við.

Þér þótti ofurvænt um fólkið þitt og alltaf spurðir þú frétta af börnum mínum ef þau voru ekki með í för. Elsku amma og langamma og stjúplangamma, takk fyrir vináttuna, takk fyrir kærleikann og takk fyrir hláturinn og takk fyrir væntumþykjuna. Góða ferð, góða ferð.

Matthías Freyr, Sigríður Didda, Gúa Dögg, Hulda og Ari.

Fyrir sex árum síðan varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Guðnýju Sigurðardóttur, síðar tengdamóður minni. Það var á þriðja stefnumóti okkar Óla sonar hennar að hann vildi að ég hitti móður sína. Ég varð hálfskelkuð að hitta ókunnuga konu en það reyndist ástæðulaust. Frá fyrsta degi tók hún mér opnum örmum og uppkomnum börnum mínum eins og hennar eigin barnabörn væru. Guðný var mikill gestgjafi og naut þess mjög að hafa fólk í kringum sig. Á heimili hennar var mikill gestagangur ættingja og vina og lagði hún sig mjög fram um að taka vel á móti fólki þótt aldurinn færðist yfir og heilsunni hrakaði. Fram undir það síðasta fylgdist Guðný vel með allri þjóðfélagsumræðu og hafði áhuga og skoðanir á því sem bar á góma. Hún fylgdist einnig af kappi með íþróttum og sérstaklega landsleikjum, hvort sem um knattspyrnu eða handknattleik var að ræða. Gylfi Sig., Óli Stef. og Guðjón Valur voru hennar menn. Mér fannst það sérstakt þegar ég heyrði að hún, af þessari kynslóð sem alla tíð lét aðra ganga fyrir, hefði tekið sig til og lagt í langferðir bæði til Ameríku og Ástralíu að heimsækja systkini sín. Þetta fór hún ásamt systur sinni og mági og lét það ekki stoppa sig þótt að eiginmaðurinn sýndi því ekki áhuga að ferðast yfir hálfan hnöttinn til þess eins að heimsækja fólk. Guðný hugsaði samt vel um sinn mann og útbjó mánaðarskammt af allskyns réttum í frystikistuna. Ég vil að leiðarlokum þakka fyrir hlýju og vináttu góðrar konu.

Far þú í friði,

friður Guðs þig blessi

hafðu þökk fyrir allt og allt.

(V. Briem)

Bryndís Bragadóttir.