Gömlu stórveldin KR og Njarðvík mætast í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik, Dominos-deildarinnar, en fyrstu fjórir leikir tímabilsins fara fram í kvöld. Liðin mætast í Vesturbænum klukkan 20.15.
Gömlu stórveldin KR og Njarðvík mætast í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik, Dominos-deildarinnar, en fyrstu fjórir leikir tímabilsins fara fram í kvöld. Liðin mætast í Vesturbænum klukkan 20.15. Bæði lið koma mikið breytt til leiks og eru m.a. þrír nýir útlendingar á mála hjá hvoru þeirra.
Deildin hefst á Egilsstöðum þar sem nýliðar Hattar taka á móti Grindavík kl. 18.30 en einnig er leikið á Sauðárkróki (Tindastóll og ÍR) og í Þorlákshöfn (Þór og Haukar) í kvöld.