40 ára Hera ólst upp í Kópavogi en býr í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hera vinnur á leikskóla í Vogum og er í háskólanámi. Helstu áhugamálin eru samvera með fjölskyldu og vinum og á þessum tímum eru gönguferðir í sérstöku uppáhaldi.
Maki: Kjartan Ingi Jónsson, f. 1978, kennari í Vogunum.
Börn: Stefán Svanberg, f. 2001, Jökull Þór, f. 2007, Þórunn Sif, 2009 og Svanborg Ósk, f. 2015.
Foreldrar: Svanborg Svansdóttir, f. 1962 og Bergur Álfþórsson, f. 1964. Ágúst Jónsson, f. 1959. Svanborg og Bergur búa í Vogunum.