Þróttur Tómas Ingi hefur áður stýrt meistaraflokksliði hjá HK.
Þróttur Tómas Ingi hefur áður stýrt meistaraflokksliði hjá HK. — Morgunblaðið/Ómar
Gunnar Guðmundsson hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Þróttar í knattspyrnu og við taka Tómas Ingi Tómasson, Bjarnólfur Lárusson og Hallur Hallsson. Srdjan Rakjovic lætur einnig af störfum en hann starfaði með Gunnari.

Gunnar Guðmundsson hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Þróttar í knattspyrnu og við taka Tómas Ingi Tómasson, Bjarnólfur Lárusson og Hallur Hallsson.

Srdjan Rakjovic lætur einnig af störfum en hann starfaði með Gunnari. Á heimasíðu Þróttar segir að stjórnin hafi „gert breytingu“ og þetta sé niðurstaðan.

Þróttur er í erfiðri stöðu fyrir lokaumferðirnar í næstefstu deild karla. Liðið er með 12 stig eins og Leiknir F. og Magni og eru þetta þrjú neðstu liðin.