Jin Zhijian
Jin Zhijian
Eftir Jin Zhijian: "Kína hefur hingað til, og mun í framtíðinni, deila þekkingu sinni og reynslu í baráttunni gegn kórónuveirunni með heimsbyggðinni."

Fyrsti október 2020 markar þau tímamót að 71 ár er liðið frá stofnun Alþýðulýðveldisins Kína. Vegna COVID-19 get ég ekki boðið íslenskum vinum mínum á Íslandi í móttöku til að fagna þessum tímamótum í eigin persónu. Samt sem áður langar mig að minnast þessara tímamóta með þessari stuttu grein þar sem við getum litið yfir farinn veg og gægst inn í framtíðina.

Árið 2020 hefur verið langt frá því að vera venjulegt ár, fyrir bæði Kína og veröldina alla. Alheimsfaraldur COVID-19 æðir nú um heimsbyggðina og ógnar bæði lífi og heilsu fólks og hefur haft alvarleg áhrif á efnahagslega og félagslega þróun allra. Kínversk alþýða hefur staðið sameinuð í baráttunni við þá áskorun að berjast gegn faraldrinum og hefur lagt mikið á sig og fært miklar fórnir, en mikill árangur hefur náðst á tiltölulega skömmum tíma í baráttunni við COVID-19. Kína er með fyrstu löndum heimsins til að koma böndum á faraldurinn og fyrsta stóra efnahagskerfi jarðar til að jafna sig og er efnahagslífið aftur orðið traust og líflegt. Þetta mun án efa auka bjartsýni og skapa tækifæri til samvinnu við Ísland og umheiminn.

Síðan faraldurinn hófst hefur Kína tekið fullan þátt í hinu alþjóðlega viðbragði gegn COVID-19 og hefur gert sitt besta til að bregðast tímanlega við á opinn, gagnsæjan og ábyrgan hátt. Kína tilkynnti faraldurinn til WHO eins fljótt og auðið var, og veitti umsvifalaust upplýsingar og deildi reynslu til um 180 landa á heimsvísu. Kína hefur veitt fjárhagslegan stuðning sem nemur um 50 milljónum bandaríkjadala til WHO í tveimur greiðslum, sent 34 sérfræðingateymi heilbrigðisstarfsfólks til 32 landa, sent hjálpargögn í 283 pökkum til 150 landa og fernra alþjóðlegra samtaka, og útvegað og sent hjúkrunarvörur til 200 landa. Kína heitir því að þau COVID-19-bóluefni sem verða þróuð í Kína, þegar þróun og öryggisprófun þeirra verði lokið, muni standa heimsbyggðinni allri til boða.

Kína hefur hingað til, og mun í framtíðinni, deila þekkingu sinni og reynslu í baráttunni gegn kórónuvírusnum með heimsbyggðinni.

Ársins 2020 mun ætíð vera minnst sem ársins þar sem Kína og Ísland veittu hvort öðru ómetanlegan stuðning við að komast yfir erfiðleikana á þessum myrku tímum. Síðan faraldurinn braust út hafa ríkisstjórnir beggja landanna og almenningur boðið hvort öðru dýrmæta hjálp með sameiginlegri sýn og hvatningu og nýr kafli hefur hafist í traustum samskiptum ríkjanna. Xi Jinping, forseti Kína, og Li Keqiang forsætisráðherra skiptust á bréfum við Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, og skiptust á samúðarkveðjum og tjáðu sínar bestu óskir hvert til annars ásamt baráttukveðjum til að berjast saman gegn faraldrinum. Almenningur í báðum löndunum hefur einnig tjáð hvor öðrum umhyggju og stuðning á fjölbreyttan hátt, eins og að skiptast á kveðjum, tónlistarflutningi og með hvetjandi myndböndum. Þessar hjartnæmu kveðjur hafa snert streng í hjarta íbúa beggja landanna.

Kínverska sendiráðið á Íslandi brást skjótt og aðstoðaði Ísland við kaup og flutning á hjúkrunarvörum frá Kína. Við stóðum einnig fyrir því að hafa samband við sex kínverskar stofnanir og fyrirtæki sem útveguðu andlitsgrímur, einnota hlífðarföt og andlitsskildi að andvirði 35 milljóna króna sem gjöf til Íslands. Samfélag Kínverja á Íslandi hugsaði til heimalandsins og þeim og kínverskum fræðimönnum og námsmönnum á Íslandi tókst að safna 1,57 milljónum króna til stuðnings Wuhan í baráttu sinni gegn vírusnum.

Mig langar að nota þetta tækifæri og tjá hugheilar þakkir til landsmanna og vina sem hafa stutt baráttu Kína gegn vírusnum og staðið þétt að baki tvíhliða samskiptum þjóðanna.

Á árinu 2020 höfum við orðið vitni að gríðarlegum breytingum á hinu alþjóðlega landslagi. Heimurinn berst við COVID-19-faraldurinn og fer jafnframt í gegnum dýpstu grundvallarbreytingar á heimsmyndinni sem hafa orðið í heila öld, við verðum jafnframt vitni að vaxandi óstöðugleika, óvissu, vaxandi einangrunarhyggju, einhliða afstöðu, ásamt síauknum árásum á alþjóðlegar stofnanir. COVID-19 minnir okkur á að við búum í samtvinnuðu alheimsþorpi með sameiginlega hagsmuni. Öll lönd eru tengd sterkum böndum og eiga sameiginlega framtíð. Við ættum að fagna þeirri heimssýn að veröldin verði sameinuð í framtíðinni og hagur eins sé hagur allra.

Kína mun halda áfram að styðja heilshugar alþjóðakerfi sem byggir á grunni Sameinuðu þjóðanna. Kína sækist eftir opinni og sameiginlegri þróun og mun staðfastlega halda sig við að byggja upp opið alþjóðlegt hagkerfi og mun standa með hinu marghliða viðskiptasamstarfi sem byggist á stefnu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Kína leitar eftir framsækinni, samþættri, grænni og opinni framþróun og mun halda áfram að grípa til öflugrar stefnumótunar og aðgerða sem miðast að því að útblástur CO 2 nái hámarki fyrir árið 2030 og nái kolefnisjöfnun fyrir árið 2060. Kína er tilbúið til að styrkja alþjóðlegt samstarf með öðrum löndum hvar sem er í veröldinni í þeirri viðleitni að viðhalda alþjóðasamstarfi, frjálsum viðskiptum, viðbrögðum gegn loftslagsvánni og viðhalda sjálfbærri þróun með það að markmiði að skapa samfélag jarðarbúa með sameiginlega framtíð, saman getum við byggt betri veröld fyrir framtíð jarðar!

Þróun í Kína hefur sýnt eftirtektarverðan árangur og vakið athygli umheimsins, framþróun í Kína á sér bjarta framtíð og mun ekki verða stöðvuð. Við munum halda áfram að halda okkur við þá slóð að feta leið friðsamlegra framfara og munum aldrei sækjast yfir yfirráðum eða útþenslu.

Á næsta ári munum við minnast þess að 50 ár eru liðin síðan Kína og Ísland tóku upp stjórnmálasamband. Ég hef trú á því að með sameiginlegu átaki muni samskipti landanna halda áfram að batna og færast upp á nýtt stig. Ég vona að við munum ná að sigrast á COVID-19 í náinni framtíð, og að fólk um víða veröld nái að vinna einarðlega saman að nýrri framtíð fyrir mannkynið.

Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi.