Svonefnd Nýsköpunarvika hófst í gær, miðvikudag, og stendur til 7. október. Í stað þess að fresta hátíðinni vegna COVID-19 var tekin sú ákvörðun að beita skapandi hugsun og halda smærri viðburði í bland við rafræna viðburði. Með hátíðinni gefst frumkvöðlum og fyrirtækjum tækifæri til að kynna skapandi starfsemi sína og vekja athygli á þeim framúrstefnulegu lausnum sem sprottið hafa upp úr íslensku hugviti.
Sess til framtíðar
Markmið Nýsköpunarvikunnar er þríþætt, segir í tilkynningu. Í fyrsta lagi að vekja athygli á nýsköpun innan stærri fyrirtækja hér á landi og draga fram sérstöðu þeirra. Þá er ætlunin að koma á samtali milli frumkvöðla, sprotafyrirtækja og almennings og veita innsýn í sköpunarferli. Loks er stefnt að því að Nýsköpunarvikan skapi sér sess til framtíðar sem vettvangur fyrir erlenda aðila sem vilja kynnast nýsköpun á Íslandi, tengjast sprotum, fjárfestum og frumkvöðlum og mynda ný viðskiptasambönd og skapa tengsl.„Í árferði sem þessu er mikilvægt að ýta undir nýsköpun, því með skapandi hugsun getum við lyft okkur hraðar upp úr þeirri efnahagslegu dæld sem við erum nú í vegna COVID-19. Við erum afar ánægð með móttökurnar sem Nýsköpunarvikan hefur fengið meðal fyrirtækja í geiranum, sem sjást hvað skýrast í því hversu fjölbreytta og marga samstarfsaðila við fengum,“ segir Edda Konráðsdóttir, einn af stofnendum hátíðarinnar.