Guðmundur Hrafn Pálsson
Guðmundur Hrafn Pálsson
Gjarnan er sagt um auglýsingastofur að þær séu eins og kanarífuglinn í kolanámunni, að þegar kreppir að í samfélaginu séu þær fyrstar til að finna fyrir samdrættinum.

Gjarnan er sagt um auglýsingastofur að þær séu eins og kanarífuglinn í kolanámunni, að þegar kreppir að í samfélaginu séu þær fyrstar til að finna fyrir samdrættinum. Fyrr í vikunni óskaði hin gamalgróna auglýsingastofa Íslenska auglýsingastofan eftir gjaldþrotaskiptum, en stofan missti sinn stærsta viðskiptavin, Icelandair, til Hvíta hússins í byrjun ársins. Einnig spiluðu inn í áhrif kórónuveirufaraldursins.

Guðmundur Hrafn Pálsson, formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA, segir í samtali við Morgunblaðið að auglýsingastofur innan SÍA hafi allar fundið fyrir samdrætti, og flestar hafi þurft að fækka fólki, enda sé launakostnaður stærsti kostnaðarliður í rekstri stofanna. Hann segir að það sem sé erfiðast núna sé óvissan framundan. „Það hafa ýmsir geirar farið illa út úr veirufaraldrinum, eins og ferðabransinn. Verkefni tengd honum voru töluverð inni á stofunum.“

Guðmundur segir að það sé leiðinlegt að horfa á eftir Íslensku auglýsingastofunni. Þar hafi starfað fólk með mikla reynslu og þekkingu.

Aðspurður telur Guðmundur að starfsfólk Íslensku auglýsingastofunnar ætti að geta komist í vinnu annars staðar, enda muni viðskiptavinir stofunnar einnig flytjast annað. Þeir þurfi þjónustu áfram.

Ekki í fyrsta skiptið

Eins og Guðmundur útskýrir er þetta ekki í fyrsta skipti sem auglýsingastofur þurfa að takast á við samdrátt. Þeir sem séu reyndir í bransanum viti að á þessu megi eiga von reglulega. „Okkar hlutverk núna er að finna tækifæri í ástandinu. Þar á ég við til dæmis að finna nýjar leiðir til að selja vörur. Við höfum séð það til dæmis í aukinni áherslu á netverslun.“

Guðmundur ítrekar að fyrirtæki sinni markaðssetningu áfram, þrátt fyrir faraldurinn. „Þeir sem halda áfram að markaðssetja sig í kreppu, koma sterkari út úr henni.“