Ragnheiður Elín, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, ákvað að skella sér út í vikufrí til Ítalíu á dögunum.
Ragnheiður Elín, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, ákvað að skella sér út í vikufrí til Ítalíu á dögunum. Í samtali við Loga Bergmann og Sigga Gunnars í Síðdegisþættinum sagði Ragnheiður ferðina hafa heppnast rosalega vel en auðvitað hefðu þau haft smá áhyggjur. „Okkur leið eins og við værum að gera eitthvað sem við máttum ekki,“ sagði hún. Viðtalið við Ragnheiði er hægt að hlusta á í heild sinni á K100.is.