Ísland Ró er yfir þessari mynd Julie, sem er tekin á Vestfjörðum.
Ísland Ró er yfir þessari mynd Julie, sem er tekin á Vestfjörðum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Að fá snjó, sól, vind, logn, regn og regnboga, allt í einum bíltúr, er æðislegt,“ segir hin belgíska Julie Stamenic, sem er heilluð af Íslandi og fangar birtu og stemningu með myndavélinni. Hún fann líka ástina á Íslandi og sagði starfi sínu lausu því hún vill ráðstafa tíma sínum sjálf.

Kristín Heiða Kristinsdóttir

khk@mbl.is

Ég breytist í landkönnuð þegar ég gríp myndavélina og legg af stað út í náttúruna til að fanga töfra birtunnar og stemninguna í augnablikinu. Ég sæki í kraftinn sem landslag býr yfir,“ segir Julie Stamenic, belgísk ung kona sem hefur mikla ástríðu fyrir ljósmyndun og heldur úti vefsíðunni juliestamenic.com. Þar birtir hún ljósmyndir sínar, meðal annars myndir frá Íslandi.

„Þegar ég bjó í Noregi um tíma langaði mig alltaf til að skreppa til Íslands, enda hafði ég lengi verið heilluð af litlu eyjunni ykkar. Ég skellti mér loksins árið 2015 og varð ekki fyrir vonbrigðum. Í framhaldinu flutti ég aftur til heimalands míns, Belgíu, en svo kynntist ég íslenskri konu, Auði Sigvaldadóttur, sem er núna kærasta mín og fyrir vikið hef ég komið oft til Íslands, enda býr tengdafjölskylda mín öll þar,“ segir Julie og bætir við að þær Auður búi núna saman í Barcelona.

Íslendingar náttúrutengdir

Julie er heilluð af íslenskri náttúru og hún kemur því vel til skila í ljósmyndum sínum.

„Mér finnst frábært hversu fjölbreytt landslag ber fyrir augu þegar ég ferðast um Ísland, jafnvel á ekki lengri leið en frá Keflavík til Akureyrar, þar sem fjölskylda Auðar býr. Sama er að segja um veðurfarið, það er síbreytilegt, sem er draumastaða fyrir ljósmyndara. Að fá snjó, sól, vind, logn, regn og regnboga, allt í einum bíltúr, er æðislegt. Ég kann líka einstaklega vel að meta nándina á milli fólks á Íslandi, sem er ólíkt því sem ég kynntist í Noregi. Á Íslandi er eins og allir þekkist, allir eru tengdir í gegnum einhvern, jafnvel blóðskyldir. Þetta gerir samfélag ykkar alveg einstakt. Mér finnst heillandi að fólk búi á þessari litlu eyju, þar sem þið eruð umvafin stórbrotinni náttúru. Íslendingar eru svo tengdir náttúrunni að þegar þeir byggja hús eða vegi þá taka þeir jafnvel tillit til þess hvort einhver klettur gæti kannski verið heimili álfa eða huldufólks, og megi því ekki raska eða fjarlægja. Mér finnst stórkostlegt hvernig náttúran er með þessum hætti samofin menningu ykkar.“

Á portúgalskan hest

Margar af myndum Julie frá Íslandi eru af íslenskum hestum, sem henni finnst sérlega fallegir og gæfir.

„Þeir eru líka mjög myndrænir. Því miður hef ég ekki enn prófað að sitja íslenskan hest, en það kemur að því, mér skilst að þeir séu mjög mjúkir á töltinu,“ segir Julie sem er hestakona, hún á portúgalskan hest, hryssuna Violetu, sem hún heldur rétt utan við Barcelona. Hún segist hlakka til að komast aftur til Íslands að covid loknu, til að ferðast og taka fleiri myndir. Hún segist eiga eftir að ferðast um Austfirði og að hana langi að koma á Vestfirðina að vetri til.

„Við Auður ætluðum saman til Íslands í sumar, en við frestuðum því vegna heimsfaraldurs. Auður fer bráðum í heimsókn til Íslands, en ég verð um kyrrt hér í Barcelona,“ segir Julie og bætir við að ástandið sé ekki mjög slæmt þar núna, fólk lifi nokkuð eðlilegu lífi með veiruvörnum.

„Ástandið var miklu verra hér í vor,“ segir Julie sem leggur sig fram um að læra íslensku og hún býr vel að því að kunna svolítið í norsku.

„Íslenskan er erfið, sérstaklega framburðurinn, stafirnir ð, þ og æ standa í mér, svo ekki sé nú talað um dl-framburðinn þegar tvö ell koma saman, eins og í orðinu fallegt,“ segir Julie sem menntaði sig í viðskiptafræði á sínum tíma og starfaði við fagið í fimm ár í Luxemborg og Barcelona.

„Í sumar ákvað ég að segja því starfi lausu, því mér líkar ekki að vera bundin í vinnu hjá öðrum frá klukkan níu til sex. Ég vil geta ráðstafað tíma mínum sjálf og ég vil geta skroppið til Íslands þegar ég vil og jafnvel unnið þar um tíma. Ég vil sinna ljósmynduninni meira sem og myndbandagerð. Ég er því sjálfstætt starfandi núna og tek meðal annars að mér vefsíðugerð.“