— Morgunblaðið/Eggert
Hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins tóku gildi á höfuðborgarsvæðinu í gær. Meðal annars hefur öllum sund- og baðstofum verið lokað, sem og líkamsræktarstöðvum. Gildir lokunin til 19. október hið minnsta.

Hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins tóku gildi á höfuðborgarsvæðinu í gær. Meðal annars hefur öllum sund- og baðstofum verið lokað, sem og líkamsræktarstöðvum. Gildir lokunin til 19. október hið minnsta. Þörf fólks fyrir holla hreyfingu hverfur hins vegar ekki þó að lokað sé í ræktinni og er því gott að grípa til sinna ráða, líkt og þessi kona, sem fór út að skokka á Seltjarnarnesinu í gær. 2