Nýbyggingar Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru útgefin byggingarleyfi fyrir samtals 646 íbúðir í borginni.
Nýbyggingar Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru útgefin byggingarleyfi fyrir samtals 646 íbúðir í borginni. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Fyrstu tölur frá Samtökum iðnaðarins sýna um 3% samdrátt í Reykjavík milli ára og er það lítill samdráttur samanborið við höfuðborgarsvæðið allt,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs borgarinnar.

„Fyrstu tölur frá Samtökum iðnaðarins sýna um 3% samdrátt í Reykjavík milli ára og er það lítill samdráttur samanborið við höfuðborgarsvæðið allt,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs borgarinnar. Ný talning Samtaka iðnaðarins hefur leitt í ljós verulegan samdrátt í nýbyggingum íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Sigurborg segir hins vegar að þetta líti vel út í Reykjavík „og við erum bjartsýn á að íbúðauppbygging á þessu ári verði meiri en á síðasta ári. Árið 2019 fóru 846 nýjar íbúðir í byggingu en á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru útgefin byggingarleyfi fyrir samtals 646 íbúðir svo það stefnir í vöxt í Reykjavík,“ segir hún.

„Þetta rímar vel við þá staðreynd að síðustu fimm ár hafa verið eitt mesta uppbyggingartímabil í Reykjavík í áratugi. Frá ársbyrjun 2015 hefur hafist bygging á 5.680 nýjum íbúðum. Mesta samdráttarskeiðið var hins vegar frá 2009 til 2011 en þá var hafin smíði á 282 íbúðum og þar af einungis 10 íbúðum árið 2010,“ segir hún.

Stór breyting á aðalskipulagi borgarinnar kynnt

Sigurborg segir að í stórri breytingu á gildandi aðalskipulagi borgarinnar sem kynna átti í gær í skipulags- og samgönguráði sé gert ráð fyrir kröftugum vexti í Reykjavík þar sem stefnt sé á uppbyggingu 1.000 íbúða á hverju ári til ársins 2040.

„Við gerum ráð fyrir að íbúafjölgun verði áfram knúin af aðflutningi fólks að utan. Reykjavík er útvörður landsins í alþjóðasamfélaginu og því er sérstaklega mikilvægt að styrkja samkeppnisstöðu borgarinnar. Hún er nefnilega í samkeppni um ungt vel menntað fólk og alþjóðleg fyrirtæki. Kröftug íbúðauppbygging er grunnforsenda þess að Reykjavík verði hreyfiafl hagvaxtar og nýsköpunar á Íslandi. Því stefnir Reykjavík ótrauð á að leiða húsnæðisuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu næstu árin,“ sagði hún. omfr@mbl.is