Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ný Krýsuvíkurkirkja, sem verið hefur í smíðum undanfarin ár hjá nemendum trésmíðadeildar Tækniskólans í Hafnarfirði, var í vikunni hífð af jörðu og sett á dráttarvagn. Stefnt er að flutningi kirkjunnar á sinn varanlega stað í næstu viku, en margvíslegan undirbúning þarf áður. Nú þarf meðal annars að útbúa burðarþolið malarplan fyrir kranann sem notaður verður til að færa guðshúsið, sem er 6,8 tonn að þynd, af palli dráttarbíls yfir á kirkjuhólinn.
Fyrri kirkja í Krýsuvík var byggð árið 1857 en brann til kaldra kola í eldsvoða af völdum íkveikju 2. janúar 2010. Strax í kjölfarið kom fram áhugi meðal stjórnenda Iðnskólans í Hafnarfirði, sem þá var, á að smíði nýrrar kirkju yrði verkefni trésmíðanema skólans. Hljómgrunnur var fyrir slíku og þar með komst málið á hreyfingu milli stjórnenda skólans og kirkjunnar fólks.
Nákvæmum fyrirmyndum hefur verið fylgt við smíði kirkjunnar, en starfsmenn Þjóðminjasafnsins tóku þá gömlu út mjög nákvæmlega árið 2003; mældu, mynduðu og skráðu. Hafa þær upplýsingar í raun gert þessa vandasömu smíði gerlega, en hún hefur tekið rúman áratug.