Herferð Fólk var hvatt til að láta öskur sitt hljóma á Íslandi.
Herferð Fólk var hvatt til að láta öskur sitt hljóma á Íslandi.
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Við höfum þurft að meta stöðuna eftir hendinni hverju sinni og haga okkur allt öðruvísi við að móta þessa herferð en lagt var upp með,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.

Ríkissjóður veitti 1,5 milljörðum króna í markaðsverkefnið Ísland – saman í sókn sem ætlað er að efla íslenska ferðaþjónustu í tengslum við áföll vegna kórónuveirunnar. Þegar hefur verið ráðist í herferðina Let it out þar sem fólki var boðið að losa um streitu vegna veirunnar með því að láta öskur sitt hljóma á Íslandi. Vakti herferðin nokkra athygli.

„Við höfum nú ráðstafað 20% af heildarfjárhæðinni þannig að megnið er eftir. Nú er verið að móta frekari aðgerðir og vissulega viljum við eiga þungann af aðgerðunum inni þegar fólk fer að ferðast og bóka ferðir á ný. Hins vegar er mikilvægt að það séu stöðug skilaboð frá áfangastaðnum. Við lítum á þetta eins og kosningar, við viljum hafa áhrif á það hvað fólk mun kjósa. Ef við ætlum bara að auglýsa á kjördag meðan aðrir eru búnir að auglýsa í aðdraganda kosninganna munum við verða undir,“ segir Sigríður.

Óþreyja í ferðalöngum

Í gær fór fram Vestnorden-ferðakaupstefnan en hún er haldin fyrir fyrirtæki á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi. Alls voru 175 fyrirtæki skráð til leiks og fór kaupstefnan fram á vefnum. Sigríður segir að ferðaþjónustufyrirtæki vinni almennt langt fram í tímann. Máli skipti að viðhalda sterkum viðskiptatengslum og vera tilbúin þegar fólk fer að ferðast á ný. „Það er óþreyja í fólki að fara aftur að ferðast og okkur fannst mikilvægt að sitja ekki með hendur í skauti þótt það séu ferðatakmarkanir núna,“ segir hún.

Vestnorden-ferðakaupstefnan er haldin annað hvert ár á Íslandi og hin árin til skiptis í Færeyjum og á Grænlandi. Í ár stóð til að halda kaupstefnuna á Reykjanesi en vegna kórónuveirunnar reyndist það ekki hægt. Stefnt er að því að halda Vestnorden undir venjulegum formerkjum á Reykjanesi að ári, 5.-7. október 2021. Ráðstefnan hefur verið fastur liður í dagskrá ferðaþjónustufyrirtækja hér síðan árið 1986.