Landspítalalóðin Meðferðarkjarninn er fyrir miðri mynd. Þetta verður risabygging eins og vel sést í samanburði við gamla spítalann til hægri.
Landspítalalóðin Meðferðarkjarninn er fyrir miðri mynd. Þetta verður risabygging eins og vel sést í samanburði við gamla spítalann til hægri.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í næsta mánuði verður byrjað að steypa upp nýtt þjóðarsjúkrahús á Landspítalalóðinni. Samið var við byggingarfyrirtækið Eykt um að vinna verkið fyrir tæpa 8,7 milljarða króna og er áætlað að það taki þrjú ár.

Baksvið

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Í næsta mánuði verður byrjað að steypa upp nýtt þjóðarsjúkrahús á Landspítalalóðinni. Samið var við byggingarfyrirtækið Eykt um að vinna verkið fyrir tæpa 8,7 milljarða króna og er áætlað að það taki þrjú ár. Enda verður þetta ein stærsta bygging Íslands, um 70.000 fermetrar. Síðan tekur við vinna við innréttingar og annan frágang og áætlað er að taka sjúkrahúsið í notkun árið 2025-2026.

Meðferðarkjarninn, eins og einingin er nefnd, er stærsta einstaka bygging Hringbrautarverkefnisins og mun gegna lykilhlutverki í starfseminni, segir í kynningu á heimasíðu Nýs spítala.

Í meðferðarkjarnanum munu fara fram flóknar og vandasamar aðgerðir, rannsóknir og umönnun sjúklinga þar sem stuðst er við háþróaða tækni og sérhæfða þekkingu. Kröfur um aðbúnað verða sambærilegar og í nýjum sjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar.

Mun tengjast öðrum starfseiningum Landspítalans

„Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.

Meðferðarkjarninn tengist öðrum starfseiningum spítalans með tengigöngum og tengibrúm,“ segir á heimasíðunni.

Meðferðarhluti hússins verður á neðstu þremur hæðum þess.

• Á 1. hæð er aðalinngangur frá Sóleyjartorgi og bráðamóttaka sem leysir af hólmi bráðamóttökur sem í dag eru á fimm stöðum í Reykjavík. Á 1. hæð verður einnig framleiðsluapótek fyrir spítalann og neðanjarðartengingar við núverandi húsnæði Landspítalans.

• Á 2. hæð verða myndgreining, speglanir, hjartarannsóknir og smitsjúkdómadeild, sem og annað aðalanddyri meðferðarkjarnans. Þar verður einnig ýmiss konar þjónusta svo sem matartorg, fyrirlestrasalir, smávöruverslanir og upplýsingaborð.

• Á 3. hæð verða skurðstofur, hjarta- og æðaþræðingarstofur og gjörgæsla ásamt móttöku, og undirbúnings- og vöknunaraðstöðu skurðstofa. Tengibrú verður á 3. hæð yfir í kvennadeild og Barnaspítala Hringsins.

• 4. hæðin er nær eingöngu tæknihæð sem þjónar meðal annars skurðstofum á 3. hæð en á hæðinni eru einnig vinnu- og hvíldarrými starfsfólks.

• Á 5. og 6. hæð verða legudeildir. Níu legudeildir verða í húsinu, átta á efstu tveimur hæðunum og ein á 2. hæð. Hverri þeirra verður skipt upp í þrjár einingar þar sem teymi starfsfólks sinnir að jafnaði átta sjúklingum innan hverrar einingar. Allar sjúkrastofur legudeilda eru einbýli með sérsnyrtingu. Góð aðstaða verður fyrir aðstandendur á sjúkrastofum og legudeildum en í meðferðarkjarna verða þeir sjúklingar sem þurfa hvað mesta umönnun starfsfólks.

• Í kjallara hússins verða ýmis þjónusturými sem styðja við klíníska starfsemi hússins. Þar eru meðal annars búningsklefar starfsmanna, dauðhreinsun, framleiðsluhluti apóteks og framleiðsla geislavirkra efna sem notuð eru í myndgreiningu.

Þá verður þar ýmis stoðþjónusta svo sem þvottastöð fyrir rúm, ræstimiðstöð, hjálpartækjalager og tæknirými. Frá kjallara verða neðanjarðartengingar til meðal annars rannsóknahúss og háskólabyggingar.

Áætluð staða á hverri einingu spítalans fyrir sig miðað við hámarkskálag á miðjum degi er sem hér segir: Legudeildir 210, gjörgæsla 25, skurðstofur, undirbúningur og vöknun 60, hjarta- og æðaþræðingar 15, myndgreining og speglun 50 og bráðamóttaka 120. Alls eru þetta 480 sjúklingar.

„Meðferðarkjarninn verður stór bygging með fjölþætta starfsemi. Honum verður deilt upp í fimm byggingarhluta til að draga úr stærðaráhrifum hans á nærumhverfið. Rýmin á milli byggingarhlutanna mynda ljósgarða sem hleypa birtu inn í velflest meðferðar- og vinnurými og skapa græðandi umhverfi fyrir sjúklinga, gesti og starfsfólk,“ segir á heimasíðu Nýs spítala.

Mikill fjöldi sérfræðinga hefur undirbúið verkefnið. Corpus-hópurinn vinnur nú að fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans. Í Corpus-teyminu eru Hornsteinar arkitektar, Basalt arkitektar, LOTA verkfræðistofa, VSÓ Ráðgjöf, TRIVIUM ráðgjöf, NIRAS, De Jong Gortmaker Algra, Buro Happold engineering, Reinertsen og Asplan Viak.