Kjartan Henry Finnbogason var fljótur að minna á sig eftir að hann sneri aftur til danska knattspyrnuliðsins Horsens en hann lék í gær fyrsta leikinn eftir endurkomuna. Horsens sótti þá heim C-deildarliðið Næsby í 2.
Kjartan Henry Finnbogason var fljótur að minna á sig eftir að hann sneri aftur til danska knattspyrnuliðsins Horsens en hann lék í gær fyrsta leikinn eftir endurkomuna. Horsens sótti þá heim C-deildarliðið Næsby í 2. umferð dönsku bikarkeppninnar og Kjartan skoraði tvö fyrri mörk liðsins í 3:0-sigri. Aron Elís Þrándarson var líka á skotskónum í bikarkeppninni í gær. OB sótti heim C-deildarliðið Hillerød og náði að merja sigur, 2:1. Aron jafnaði metin fyrir OB og lagði síðan upp sigurmark liðsins.