30 ára Eva Pandora er fædd og uppalin á Sauðárkróki. Hún er nýflutt til Reykjavíkur. Eva Pandora er sérfræðingur á þróunarsviði hjá Byggðastofnun og fv. þingmaður Pírata. Hún hefur mikinn áhuga á pólitík, söng og dansi en ekkert endilega í þessari röð.
Maki : Ingi Vífill Guðmundsson, f. 1988, hönnuður.
Börn : Árney María Daníelsdóttir, f. 2016. Síðan eiga Eva og Ingi von á barni í janúar.
Foreldrar : Baldur Haraldsson, f. 1962, múrarameistari á Sauðárkróki, og Pimpan Ushuwathana húsmóðir, f. 1958, býr í Taílandi.