Besti samningurinn. N-Allir
Norður | |
♠K2 | |
♥ÁK863 | |
♦652 | |
♣KD8 |
Vestur | Austur |
♠D6 | ♠G10873 |
♥1097 | ♥DG42 |
♦9743 | ♦8 |
♣Á1097 | ♣642 |
Suður | |
♠Á954 | |
♥5 | |
♦ÁKDG10 | |
♣G53 |
Suður spilar 6♦.
Þeir sögðu vel á spilin sín, Icebaldi (Jón Baldursson) og Einarusa (Einar Guðjohnsen), í viðureign við Íra í síðasta netmóti. Jón opnaði á grandi í norður (15-17), Einar spurði um háliti með 2♣, fékk svar á 2♥ og sýndi þá tígulinn eðlilega með 3♦. Jón sagði 3G, Einar 4G (áskorun) og Jón 6♦. Allt beint af augum í besta samning.
En besti samningur vinnst ekki alltaf. Írinn Hugh McGann kom út með laufás og spilaði laufi áfram í öðrum slag. Einar tók ÁK í trompi og staldraði við þegar legan sannaðist. Í jafnri tígullegu væri hægt að kanna hjartað með ♥ÁK og stungu, taka svo síðasta tígulinn af vörninni og trompa fimmta hjartað frítt. En 4-1-legan útilokar þessa leið og Einar reyndi í staðinn að stinga spaða í borði. Því miður – vestur átti bara tvo spaða og trompaði yfir blindum. Einn niður.