Svíþjóð Hafdís Renötudóttir er á leið á kunnuglegar slóðir.
Svíþjóð Hafdís Renötudóttir er á leið á kunnuglegar slóðir. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafdís Renötudóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins, er gengin til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Lugi frá Lundi. Hafdís hefur ekkert leikið með Frömurum á tímabilinu vegna höfuðmeiðsla en hún er 23 ára gömul.
Hafdís Renötudóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins, er gengin til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Lugi frá Lundi. Hafdís hefur ekkert leikið með Frömurum á tímabilinu vegna höfuðmeiðsla en hún er 23 ára gömul. Hún þekkir vel til í Svíþjóð eftir að hafa leikið með Boden tímabilið 2018-19. Þá hefur Hafdís einnig leikið með SønderjyskE í Danmörku en hún er uppalin hjá Fram í Safamýrinni. Lugi er í neðsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar án stiga eftir fyrstu tvo leiki sína.