Öllum Hrafnistuheimilunum átta hefur verið lokað fyrir heimsóknum næstu tvær vikurnar.
Öllum Hrafnistuheimilunum átta hefur verið lokað fyrir heimsóknum næstu tvær vikurnar. „Í ljósi fjölda smita í samfélaginu og þess að smit eru farin að berast inn á hjúkrunarheimilin er ljóst að bregðast þarf við með enn harðari aðgerðum til að vernda viðkvæma hópa heimilanna. Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg veikindi er að ræða eða sé einstaklingur kominn á lífslokameðferð,“ segir m.a. í tilkynningu frá neyðarstjórn Hrafnistu.