Í grein í vísindaritinu Scientific Reports er fjallað um áhrif hlýnandi sjávar á útbreiðslu fisktegunda og voru 82 tegundir skoðaðar. Greinin byggist á gögnum úr 5.390 togstöðvum í stofnmælingum í haustralli Hafrannsóknastofnunar 1996-2018. Á tímabilinu breyttist ástand sjávar á Íslandsmiðum mikið og markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif þeirra breytinga á útbreiðslu mismunandi fisktegunda.
Alls reyndist útbreiðsla helmings tegundanna hafa breyst og langflestar sýndu tilfærslu til vesturs, norðvesturs eða norðurs. Breytingar á útbreiðslu voru mest áberandi hjá tegundum grunnslóðarinnar og þá sérstaklega hlýsjávartegundum og þeim sem lifa við þröngt hitastigsbil á Íslandsmiðum. Tilfærsla tegunda samfara 1°C hækkun sjávarhita var metin vera á bilinu 1-326 kílómetrar, að meðaltali 38 km. Rannsóknin sýndi að hækkun um 2-3°C væri líkleg til að valda stórfelldum breytingum á útbreiðslu fiska og fiskveiðum við Ísland.
Höfundar eru Steven E. Campana og Ragnhildur B. Stefánsdóttir frá Háskóla Íslands og Klara Jakobsdóttir og Jón Sólmundsson frá Hafrannsóknastofnun. aij@mbl.is