Alfreð Finnbogason missir af leik Augsburg gegn RB Leipzig í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag vegna meiðslanna sem hann varð fyrir snemma leiks gegn Dönum síðasta sunnudagskvöld. „Þetta er synd, hann var kominn á mjög gott skrið.
Alfreð Finnbogason missir af leik Augsburg gegn RB Leipzig í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag vegna meiðslanna sem hann varð fyrir snemma leiks gegn Dönum síðasta sunnudagskvöld.
„Þetta er synd, hann var kominn á mjög gott skrið. Þetta er að sjálfsögðu bakslag fyrir hann,“ sagði Heiko Herrlich, knattspyrnustjóri Augsburg, á fréttamannafundi liðsins í gær. Alfreð missti mikið úr vegna meiðsla á síðasta tímabili en hafði komið inn á sem varamaður í fyrstu þremur leikjum Augsburg í haust.