[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Í nýjum þætti frá útgerðarfyrirtækinu Samherja er fjallað sérstaklega um hegðun Jóhannesar Stefánssonar á síðustu mánuðum hans í starfi fyrir fyrirtækið.

Í nýjum þætti frá útgerðarfyrirtækinu Samherja er fjallað sérstaklega um hegðun Jóhannesar Stefánssonar á síðustu mánuðum hans í starfi fyrir fyrirtækið. Morgunblaðið hefur þáttinn undir höndum og í honum er fullyrt að Jóhannes, sem síðar ljóstraði upp um meintar mútugreiðslur Samherja til namibískra stjórnmálamanna, hafi árið 2016 verið farinn að leggja á ráðin um að fara á bak við Samherja og hefja rekstur í Namibíu með öðru útgerðarfyrirtæki og „nýta sér þau viðskiptasambönd sem félög tengd Samherja höfðu byggt upp í landinu“.

Samherji hefur afhent embætti héraðssaksóknara allar dagbækur Jóhannesar sem hann hélt á meðan hann stýrði félögum Samherja í Namibíu. Að sögn fyrirtækisins gefur ekkert í þessum dagbókarskrifum til kynna að Jóhannes hafi fengið fyrirmæli um mútugreiðslur eða aðra óeðlilega viðskiptahætti frá Íslandi. Þessar dagbækur fundust á drifi sem fannst við starfslok Jóhannesar árið 2016.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir í þættinum að Jóhannes haldi því fram að hann hafi fengið fyrirmæli um ólöglegar greiðslur í gegnum aðrar leiðir en tölvupóst þar sem hann hafi ekki tölvupósta máli sínu til stuðnings. Þorsteinn segir það þó rangt að hann hafi nokkru sinni gefið slík fyrirmæli. Mistök Samherja felist hins vegar í að að hafa ekki haft betra eftirlit með rekstrinum í Namibíu.

„Við ákváðum það um mitt ár 2016 að segja Jóhannesi Stefánssyni upp störfum vegna þess að við töldum ljóst að hann hefði farið á bak við okkur. Þegar við fórum að skoða reksturinn kom í ljós að það var regla í kringum rekstur skipanna, þ.e. úti á sjó, en því miður var mikil óregla á starfseminni í landi og því utanumhaldi sem Jóhannes Stefánsson bar ábyrgð á,“ segir Þorsteinn jafnframt í þættinum.

Ásakanir Jóhannesar á hendur fyrirtækjum, sem komu fram í þætti Kveiks í október 2019, eru til rannsóknar hjá yfirvöldum í Namibíu og á Íslandi, en ekki hefur verið höfðað mál á hendur félaginu.