Sólveig Andrea er mjög hrifin af dökkum eikarinnréttingum. Hér mætir dökk innrétting ljósum steini og spilar grái veggurinn vel við annan efnivið.
Sólveig Andrea er mjög hrifin af dökkum eikarinnréttingum. Hér mætir dökk innrétting ljósum steini og spilar grái veggurinn vel við annan efnivið. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sólveig Andrea Jónsdóttir útskrifaðist sem innanhússarkitekt frá Istituto Superiore di Architettura e Design í Mílanó árið 1998.

Sólveig Andrea Jónsdóttir útskrifaðist sem innanhússarkitekt frá Istituto Superiore di Architettura e Design í Mílanó árið 1998. Í dag starfar Sólveig sjálfstætt, hún elskar að ráða tíma sínum sjálf og hjálpa viðskiptavinum sínum við að gera heimili þeirra fallegri. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is

Heimilið mitt er hlýlegt, mér líður best þegar það er mikil hreyfing í húsinu. Krakkarnir með vini sína heima eða fjölskyldan í mat,“ segir Sólveig þegar hún er beðin um að lýsa sínu heimili. Hún segir þó alltaf gott að fá ró og næði inn á milli. Þá finnst henni best að hreiðra um sig í stofusófanum. Í sófanum finnst henni gott að fara yfir daginn með kaffibolla í hendinni.

Sólveig Andrea segir að heimili hennar endurspegli ekki endilega það sem hún hannar fyrir viðskiptavini sína.

„Hönnunin endurspeglar kúnnann, það er hann sem ræður ferðinni. Ég aðstoða við að ná sem bestu út úr hverju verkefni fyrir sig með faglegri aðstoð og auðvitað hafa viðskiptavinirnir mikið um þetta að segja.“

Fólk er með hugann við heimilið

Sólveig segir að kórónuveiran hafi ekki haft mikil áhrif á hennar stétt. Ástæðan er einföld – fólk er mun meira heima hjá sér þessi misserin og er ekki að ferðast. Þar af leiðandi er meiri áhersla á lögð á heimilin.

„Fólk er að taka í gegn hjá sér sér eldhús og baðherbergi, það sem löngu var kominn tími á en hefur ekki verið tími í. Fólk hefur kannski notað „Spánarpeningana“ í eldhúsið. Ég held að við höfum verið það mikið inni í „COVID“ og dagarnir snerust um hvað ætti að vera í matinn. Það hefur verið mikil bið eftir innréttingum á smíðaverkstæðum og í verslunum enda mikið að gera hjá öllum í þessum geira.

Eins var ekki hægt að koma eins miklu til landsins af húsgögnum og öðrum vörum, svo komu sumarfrí inn í. Þegar löndin opnuðu loksins hafði myndast smá bið eftir húsgögnum og öðru. En það er allt að komast á rétta braut núna og búðir ná að sinna eftirspurn. Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími og fólk hefur verið tilbúið með öllum ráðstöfunum og tveggja metra reglunni að fá mig inn á heimili sín til að aðstoða sig. Mér finnst mjög gaman að koma í innlit hjá fólki og ráðleggja þeim – ég elska að koma inn á heimili og hitta skemmtilegt fólk.“

Hvaða straumar eru að koma sterkir inn í vetur?

„Sterkir straumar í vetur eru klárlega heitir litir, hlýir jarðtónar og jarðlitir. Beis er klárlega liturinn sem verður í vetur og er þegar kominn inn á mjög mörg heimili. Brave liturinn frá Sérefni er litur ársins og er mjög fallegur. Við erum að fara úr köldum gráum litum sem eru búnir að vera svo lengi og erum að gera heimili okkar hlýlegri. Íslendingar eiga svo falleg heimili, hugsa vel um þau og eru klárlega með á nótunum með það nýjasta. Svartar innréttingar og marmaraborðplötur hafa verið mjög vinsælar lengi. Þær eru enn inni enda svart alltaf í tísku og klassískur litur. Þá er ég að tala um svartbæsaða eik sem ég er hrifnari af en alveg svörtu, mér finnst fallegra þegar viðurinn sést. Það er líka mikið verið að taka súkkulaðibrúnar innréttingar.

Íslendingar eru að setja sinn persónulega stíl á heimilin sín og blanda saman hlýjum tónum við þetta svarta. Bast er mikið í tísku núna og ég persónulega elska bast. Svo er haustið minn uppáhaldstími. Ég er mikil kertakona og elska þegar það er ekki bjart allan sólahringinn,“ segir Sólveig.

Gerði upp fallegt hús í Hafnarfirði

„Ég hef verið svo heppin að fá að gera fullt af skemmtilegum og fallegum verkefnum í gegnum tíðina. Í vor kláraði ég að gera einbýlishús í Hafnarfirði þar sem ég fékk mjög frjálsar hendur í hönnun og húsgagnavali. Í húsinu var allt hreinsað út og nýtt sett inn í staðinn. Til þess að fullkomna verkið voru gerðar smá tilfærslur á veggjum og veggir teknir niður.“

Sólveig segir það mjög skemmtilegt að hanna allt frá a til ö eins og hún gerði í húsinu í Hafnarfirði. Í slíkum verkefnum skiptir máli að ná fram ákveðinni hönnun á öllum innréttingum þannig að eldhús og baðherbergi skapi eina heild.

„Heildin verður að passa saman, sami viður er á innréttingum í eldhúsi og á baðherbergjum. Sömu flísar á öllum baðherbergjum þó svo að þær séu teknar í öðrum stærðum en þetta passar allt saman. Í þessu húsi eru þrjú baðherbergi sem eru öll með sama efnisvali. Ef grunnurinn er góður þá er svo auðvelt að poppa upp með húsgögnum.

Ég er mjög stolt af þessu verkefni og ánægð með útkomuna. Mig langar helst að flytja inn þarna sjálf enda útsýnið þarna geggjað og húsið hentar öllum svo vel eftir þessar breytingar. Það er alltaf gaman að sjá skemmtilega útkomu og þegar heimilisfólkið er ánægt.“

Eldhúsin vinsæl

Sólveig segir vinsælt að gera upp eldhús og eru opin eldhús málið í dag.

„Gott nútímaeldhús þarf að henta fjölskyldunni. Stórar eyjur þar sem öll fjölskyldan getur komið saman eru mjög vinsælar. Mjög vinsælt er að setja tækjaskáp í eldhúsið til að loka af tæki. Einnig þarf að vera þægilegt að vinna í eldhúsinu.“

Marmari er áberandi í efnisvali í eldhúsum í dag og reyndar á baðherbergjum líka.

„Marmaraútlitið og marmari er alltaf vinsælt. Enda efni sem er alltaf fallegt og eldist mjög vel. Það er komið svo miklu meira úrval af marmara hjá þeim í Granítsmiðjunni og svo er fallegt að toppa eldhúsið með fallegri borðplötu.“

Þegar stórar ákvarðanir eins og að gera upp eldhús eru teknar er gott að fá fagaðila í verkið.

„Ég mæli alltaf með því að láta fagaðila sjá um verkið og fá sér innanhúsarkitekt til að skoða bestu útfærsluna. Það er ekki ódýrt að skipta um eldhúsinnréttingu hjá sér, þetta er oft hjartað á heimilinu og það rými sem er mest notað. Við erum ekki að fá okkur nýja innréttingu daglega. Innréttingarnar þurfa að vera tímalausar og hægt að vinna með þeim ef maður vill breyta hjá sér,“ segir Sólveig og bendir á að það sé til dæmis hægt breyta góðum innréttingum seinna meir með því að skipta um borðplötu, skipta um hurðir, filma eða mála.“

Að lokum segir Sólveig að það sé auðveldlega hægt að lífga upp á heimili án þess að fara út í stórar framkvæmdir.

„Það er alltaf auðveldast að mála ef maður vill breyta hjá sér og það er jafnframt ódýrasta leiðin. Nýir púðar og gardínur geta gert krafaverk ef að maður er orðin þreyttur á stofunni hjá sér,“ segir Sólveig sem er spennt fyrir vetrinum og öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún er að vinna að.