Tryggingastofnun segir það afar villandi að halda því á lofti að mánaðarlegar greiðslur TR séu rangar eða að útreikningar séu rangir.

Tryggingastofnun segir það afar villandi að halda því á lofti að mánaðarlegar greiðslur TR séu rangar eða að útreikningar séu rangir. Í fréttatilkynningu sem Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastýra Tryggingastofnunar, sendi frá sér í gær kom fram að viðskiptavinir TR fái rétt greitt í mánaðarlegum greiðslum sínum á grundvelli fyrirliggjandi tekjuáætlunar hvers og eins lífeyrisþega. Tilefni tilkynningarinnar er fjölmiðlaumfjöllun um nýbirta skýrslu Ríkisendurskoðunar um Tryggingastofnun og stöðu almannatrygginga, en þar segir meðal annars að við árlegt uppgjör fyrir liðið almanaksár komi í ljós mismunur til hækkunar eða lækkunar vegna breyttra tekna á liðnu ári, en sá mismunur sé yfirleitt gerður upp í maí-júní, og þá þurfi viðskiptavinir annaðhvort að greiða til baka eða fá greidda inneign. Þá þyki stofnuninni það miður að umræða um greiðslur stofnunarinnar hafi þróast með þessum hætti. „Markmið okkar sem störfum hjá TR er nú sem fyrr að þjónusta viðskiptavini okkar eftir bestu getu með hag þeirra og velferð að leiðarljósi,“ segir m.a. í tilkynningunni. sgs@mbl.is