Tæp Dagný Brynjarsdóttir skoraði þrennu gegn Lettlandi í september.
Tæp Dagný Brynjarsdóttir skoraði þrennu gegn Lettlandi í september. — Morgunblaðið/Eggert
Óvíst er með þátttöku Dagnýjar Brynjarsdóttur í leik Svíþjóðar og Íslands í undankeppni EM í knattspyrnu þann 27. október næstkomandi vegna meiðsla.
Óvíst er með þátttöku Dagnýjar Brynjarsdóttur í leik Svíþjóðar og Íslands í undankeppni EM í knattspyrnu þann 27. október næstkomandi vegna meiðsla. Sigurvegarinn í leiknum fer afar langt með að tryggja sér toppsæti F-riðilsins og sæti á lokamóti Evrópumótsins á Englandi 2022. Dagný meiddist í leik með Selfossi gegn Val og sagði hún í viðtali við Vísi í gær að hún biði fyrirmæla frá bæklunarsérfræðingi með framhaldið. Lék hún meidd gegn Lettlandi og Svíþjóð í undankeppninni í síðasta mánuði.