30 ára Saga fæddist í Reykjavík og ólst upp þar og í Svíþjóð. Hún er menntuð leikkona og er núna að læra viðskiptafræði í HÍ. Saga hefur mikinn áhuga á útivist, ferðalögum, matreiðslu, dansi og leiklist. Maki : Guðjón Hrafn Guðmundsson, f.

30 ára Saga fæddist í Reykjavík og ólst upp þar og í Svíþjóð. Hún er menntuð leikkona og er núna að læra viðskiptafræði í HÍ. Saga hefur mikinn áhuga á útivist, ferðalögum, matreiðslu, dansi og leiklist.

Maki : Guðjón Hrafn Guðmundsson, f. 1985, kvikmyndagerðarmaður.

Börn : Alexandra Ólöf, f. 2014, og Björn Andrés, f. 2018.

Foreldrar : Guðjón Trausti Árnason, f. 1958, garðyrkjufræðingur, og Kerstin Andersson, leiðsögumaður, f. 1961. Þau, ásamt öðrum, stofnuðu Waldorf-skólann í Lækjarbotnum árið sem Saga fæddist, 1990, þar sem þau búa.