Gillan gengur illa að ná í Blackmore.
Gillan gengur illa að ná í Blackmore. — AFP
Samskipti Ian Gillan, söngvari Deep Purple, segir að samband hans við Ritchie Blackmore gítarleikara, sem yfirgaf rokkbandið goðsagnakennda fyrir 27 árum, sé þokkalegt í dag. Þetta kemur fram í viðtali við hann í breska blaðinu The Guardian.
Samskipti Ian Gillan, söngvari Deep Purple, segir að samband hans við Ritchie Blackmore gítarleikara, sem yfirgaf rokkbandið goðsagnakennda fyrir 27 árum, sé þokkalegt í dag. Þetta kemur fram í viðtali við hann í breska blaðinu The Guardian. Það sé að vísu svolítil fyrirstaða að Blackmore noti hvorki tölvu né síma, þannig að erfitt mun vera að ná í kappann. „En við skiptumst á skilaboðum og andrúmsloftið er bara býsna gott,“ sagði Gillan í viðtalinu.