Miklar deilur hafa verið milli stjórnvalda og lífeyrisþega vegna búsetuskerðinga undanfarin ár. Sú aðferð sem Tryggingastofnun hefur beitt við ákvörðun búsetuhlutfalls var borin undir umboðsmann Alþingis og taldi hann að aðferðin væri ólögleg.

Miklar deilur hafa verið milli stjórnvalda og lífeyrisþega vegna búsetuskerðinga undanfarin ár. Sú aðferð sem Tryggingastofnun hefur beitt við ákvörðun búsetuhlutfalls var borin undir umboðsmann Alþingis og taldi hann að aðferðin væri ólögleg. Þar að auki komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu í sumar að óheimilt hefði verið að skerða sérstaka framfærsluaðstoð þar sem reglugerð ráðherra hafi skort lagastoð.

Eftir mikla baráttu eldri borgara samþykkti Alþingi í vor lög um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða. Þau lög veita öldruðum rétt á framfærslustuðningi sem nemur allt að 90% af fjárhæð fulls ellilífeyris. Þessi viðbótarstuðningur er ætlaður þeim sem vegna búsetu sinnar erlendis eiga ekki rétt á fullum ellilífeyri. Þrátt fyrir að veita kærkomna aðstoð þá eru skilyrðin fyrir aðstoðinni ströng. Þar er til að mynda aftur komið á „krónu á móti krónu“-skerðingu.

Ekki var ríkisstjórnin með þessum búsetskerðingarlögum bara að taka aftur upp ömurlega „krónu á móti krónu“ skerðingu heldur einnig krónufall. Það er þegar viðkomandi fer yfir 3.999.999 krónur í 4.000.000 króna í eign, er refsingin algjör og þá einnig með refsingu við dvöl erlendis lengur en 90 daga með endurgreiðslukröfu.

Vegna baráttu lífeyrisþega gegn stjórnvöldum er nú búið að leiðrétta hlut nokkurra öryrkja sem liðu ólöglegar skerðingar árum saman. Eftir stendur þó að í fjölmörgum tilvikum viðgangast umfangsmiklar skerðingar á lífeyri almannatrygginga vegna búsetu lífeyrisþega erlendis. Auk þess eru þeir ellilífeyrisþegar sem fá greiddan viðbótarstuðning aðeins að fá 90% af réttindum sínum. Til þess að réttlætið nái fram að ganga þarf að breyta lögunum.

Þessar búsetuskerðingar eru framkvæmdar óháð því hvort búseta viðkomandi erlendis veiti honum sams konar fjárhagsleg réttindi. Á milli Íslands og EES-ríkjanna gildir sérstakur samningur sem kveður á um að réttindi glatist ekki vegna flutnings til annars EES-ríkis. Það er eitt að lífeyrir skerðist vegna lífeyrisgreiðslna erlendis frá, en þegar lífeyrir er skertur vegna þess eins að einstaklingur hefur um tíma verið búsettur í öðru landi þá er það ekkert nema mismunun.

Frumvarp Flokk fólksins um breytingu á lögum almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (skerðing á lífeyri vegna búsetu) kemur í veg fyrir slíka mismunun og þar er lagt til að einungis verði heimilt að skerða réttindi almannatrygginga vegna búsetu þegar ljóst liggur fyrir að viðkomandi eigi rétt á og njóti sambærilegra réttinda erlendis frá vegna búsetu þar. Þannig yrði komið í veg fyrir grimmilegar búsetuskerðingar gagnvart öryrkjum og ellilífeyrisþegar áður búsettir erlendis fengju 100% réttinda sinna en ekki 90%.

Þingflokksformaður Flokk fólksins. gudmundurk@althingi.is