Sálræn þvingun. V-Enginn
Norður | |
♠ÁDG9 | |
♥G3 | |
♦ÁG53 | |
♣K86 |
Vestur | Austur |
♠852 | ♠10764 |
♥ÁK1098 | ♥4 |
♦KD | ♦10764 |
♣D94 | ♣G1053 |
Suður | |
♠K3 | |
♥D7652 | |
♦982 | |
♣Á72 |
Suður spilar 3G.
Þrjú grönd voru spiluð á fimm borðum í meistaramóti Netbridge.online sem nú stendur yfir, unnust þrisvar, fóru tvisvar niður. Sömu sagnir og sama útspil: Opnun á 1♥ í vestur, dobl í norður, svar á 1G í suður, 2G-3G. Hjartaás út, síðan hjartakóngur og tía. Hvar á austur að fækka við sig?
Af ofansögðu er útreiknanlegt að þrír austmenn hentu laufum og útsettu makker sinn þannig fyrir þvingun. Hinir tveir hentu spöðum og gátu þá valdað laufið í lokastöðunni. En er hægt að færa einhver skynsamleg rök fyrir spaðaafkasti umfram lauf? Og hvað með tígulinn?
Öll afköst geta kostað slag eða slagi, en kannski er skást að henda frá spaðanum á þeirri forsendu að vörnin eigi meiri möguleika ef suður á spaðakóng. Þá nýtist hliðarstyrkur vesturs betur. En hvað sem því líður er staða austurs þungbær – sálræn þvingun í þremur litum.