Katar Freyr Alexandersson mun aðstoða Heimi Hallgrímsson.
Katar Freyr Alexandersson mun aðstoða Heimi Hallgrímsson. — Morgunblaðið/Eggert
Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, er við það að samþykkja starfstilboð Al-Arabi í Katar, en hann verður aðstoðarþjálfari Heimis Hallgrímssonar. Vefmiðilinn 433.is greindi frá í gærkvöld.
Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, er við það að samþykkja starfstilboð Al-Arabi í Katar, en hann verður aðstoðarþjálfari Heimis Hallgrímssonar. Vefmiðilinn 433.is greindi frá í gærkvöld. Mun Freyr halda starfi sínu hjá landsliðinu áfram samhliða því að aðstoða Heimi. Unnu Heimir og Freyr saman hjá landsliðinu á sínum tíma og sá Freyr m.a. við leikgreiningu á meðan Heimir var landsliðsþjálfari. Aron Einar Gunnarsson leikur með liðinu.