Hildur Guðný Ásgeirsdóttir
Hildur Guðný Ásgeirsdóttir
„Það er mjög mikilvægt að byrja þessa vinnu frá grunni og að geðrækt verði eins sjálfsögð og að læra að lesa, reikna og skrifa,“ segir Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri sjálfsvígsvarna hjá embætti landlæknis, en starfshópur skilaði...
„Það er mjög mikilvægt að byrja þessa vinnu frá grunni og að geðrækt verði eins sjálfsögð og að læra að lesa, reikna og skrifa,“ segir Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri sjálfsvígsvarna hjá embætti landlæknis, en starfshópur skilaði í byrjun árs tillögum til heilbrigðisráðherra um geðrækt barna. Þar er lagt til að hún hefjist strax í leikskóla og haldi áfram upp framhaldsskóla, og geri börnum þannig kleift að styðja við eigið geðheilbrigði. „Ráðherra er búinn að samþykkja áætlunina þannig að vonandi verða aðgerðir innleiddar sem fyrst, jafnvel strax á næsta ári,“ segir Hildur Guðný. Nánar er rætt við hana í Sunnudagsblaðinu.