Annar hluti sýningarverkefnisins „Latent Shadow“ verður opinn frá kl. 12 til 16 í dag, laugardag, í sýningarsalnum Harbinger á Freyjugötu 1.
Annar hluti sýningarverkefnisins „Latent Shadow“ verður opinn frá kl. 12 til 16 í dag, laugardag, í sýningarsalnum Harbinger á Freyjugötu 1. Á sýningunni eru verk eftir Elínu Hansdóttur, Anne Rombach, Berglindi Hreiðarsdóttur og Chelsey Honders. Listamennirnir vinna allir með ljósmyndaverk þar sem tekist er á við form og yfirborð, bjögun, umbreytingu og bókstaflega merkingu mynda. Sýningarstjórar eru Claudia Hausfeld og Daría Sól Andrews. Vegna Covid-19 verður engin formleg opnun og vel hugað að sóttvörnum.